Samvinnan - 01.03.1929, Side 53
SAMVINNAN
47
til kynna verðbreytingar og í hvaða átt þær stefna, hálf-
um eða heilum mánuði fyrirfram. Þeir, sem selja og
kaupa fyi'irfram, eru foi’vígismenn. Þeir ganga fram fyrir
skjöldu þeirra, sem kaupa og selja gegn greiðslu út í
hönd. Og verðfall eða verðhækkun fyrirfram er undan-
fari þess, að verðið hækki eða lækki í raun og veru. — b)
Með þeim er dregið úr áhrifum verðbreytinganna, því að
þegar kreppan sést fyrir, er unnið gegn henni, og hún
verður ekki eins þungbær. Ef korn fellur í verði í þessum
mánuði, þá verður það miklu minna, sem selst frá þessum
degi til mánaðarloka, heldur en það, sem boðið er til af-
hendingar um mánaðamót, og það léttir á markaðinum. En
ef komverðið hækkar, mun allt það, sem keypt er frá
þessum degi til mánaðamóta, minnka eftirspumina síðast
í mánuðinum. Þessa reglu styður það, að framleiðslan er
aukin eða úr henni dregið eftir ástæðum og miðast það
einmitt við verðlagið hjá þeim, sem kaupa og selja fyrir-
fram. Ef verðhækkun eða verðlækkun stafar af eðlileg-
um orsökum, t. d. af uppskerubresti, eða mjög ríkulegri
uppskeru, getur kaup og sala fyrirfram auðvitað ekki
komið 1 veg fyrir það; en með þeirri aðferð dreifist verð-
breytingin á lengra tíma og stærra svæði. Þeir, sem
selja og kaupa fyrirfram, gera sama gagn og verkfræð-
ingarnir, sem breyta bröttum brekkum í ávala og aflíð-
anda, svo að vagn viðskiptanna rennur mjúklega og
slysaiaust yfir hæðir og dali.
En nú skulum vér athuga málið nánar. Vel er hugs-
anlegt, að sá, sem selur fyrirfram, eigi alls ekki vöruna
til, þegar hann á að afhenda hana, svo að kaupandinn
geti alls ekki fengið hana í sínar hendur. Ef til vill er
hvorki seljandi né kaupandi kaupmaður, heldur selja þeir
og kaupa kom og ull, án þess að hafa snefil af viti á
þeim vöram. Slíkt er algengt. En hvers konar skrípaleik-
ur er þetta þá, að selja það, sem maður hefir aldrei átt?
Hér er blátt áfram teflt um verðfail og verðhækkun á
vörum eða verðbréfum, og aðferðin minnir á veðmálin í
sambandi við kappreiðar.