Samvinnan - 01.03.1929, Side 46
40
S A M V I N N A N
Landflutningar eru miklu erfiðari. Yfirborð jarðar
er svo breytilegt og mishæðótt, að leggja verður vegi fyr-
ir vöruflutninga og umferð1). Lestaflutningur getur farið
fram á vegleysu, hvort sem vörumar eru bornar á bak-
inu, eins og tíðkast í Afríku, eða notuð eru burðardýr,
eins og gert er í Asíu. En vagna er óvíða unnt að nota
nema á lögðum vegum. En vegagerð er afar dýr, og því
dýrari sem vegurinn er betri, þ. e. a. s. því meiri þyngd
sem hann á að þola og því láréttari sem hann er. Járn-
brautir eru ágætisvegur, en þær eru líka dýrastar allra
vega. Til þeirra er varið geysimiklu fé, en vextir og af-
borganir þess fjár íþyngja vöruflutningunum til muna. Ef
nægur er flutningur, má þó spara mjög mikið á því, að
nota jámbrautir, enda þótt sleppt sé þeim hagnaði, sem
vinnst við það, hve reglubundnar ferðirnar eru, þægilegar
og fljótar. Eimreið, sem beitt er fyrir röð flutningavagna,
viimur sama verk og 1000 hestar, að minnsta kosti, á
venjulegum vegi, og eimreiðin fer sjálfsagt tíu sinnum
harðara. Hitt stingur þó ennþá meir í stúf, ef borinn er
saman járnbrautarflutningur og burður á mannsbaki, eins
og tíðkast í Afríku. Slíkt er kvaðarvinna á þarlendum
mönnum og er þeim verri áþján en mansalið var. Þess
vegna er hver ný járnbraut, sem lögð er um blámanna-
landið, þeim til mikils léttis.
Um loftleiðir er tæpast unnt að fullyrða margt að
svo stöddu. Þó virðist hæpið, að flutningur að þeim leið-
um geti nokkum tíma orðið hagfelldur. Að vísu er þar
a) Samgöngubætur og fullkomnun flutningatækja á landi
og sjó má greina í þrennt: 1) Bættar leiðir (á landi: ak-
vegir, járnbrautir, brýr, jarðgöng; á’sjó: afmarkaðar eða mæld-
ar skipaleiðir, skurðir, svo sem í Suez, Panama, Korinta, Kiel).
2) Bætt flutningatæki (á landi: hin dásamlega upp-
finning hjólsins; á sjó: járnskip í stað tréskipa). 3) Aukin
orka (á landi: hesturinn, eimreiðin, knúð gufuafli eða raf-
magni, bílamir; á sjó: í fyrstu handaflið og áramar, >á seglin
og vindurinn, gufan og spaðahjólin, seinna skrúfan og iðu-
hjólið; í lofti: vélar loftskipanna.