Samvinnan - 01.03.1929, Síða 67
S A M V I N N A N
61
menn reka í hverju landi. Hafa hér að framan verið nefnd
dæmi þess, hvernig slíkt mætti verða.
En alþjóðasamvinnan á sér miklu meira hlutverk í
framtíðinni en að fullnægja þörfunum eins og þær nú eru.
Jafnframt því sem samvinnuiðnaðurinn eykst og verður
fjölbreyttari, færist út starfssvið alþjóðasamvinnunnar.
Það er t. d. líklegt, að járniðnaður samvinnufélaganna í
hverju landi verði einhvemtíma svo öflugur, að það borgi
sig að gera alþjóðasamtök til að starfrækja járnnámur.
1 þessu sambandi er vert að vekja athygli á því, að
alþjóðasamtök samvinnumanna myndi áreiðanlega vera
orðin miklu víðtækari en þau eru, ef eigi væru til fyrir-
stöðu hinir örðugu tollmúrar milli ríkja. Vilji samvinnu-
menn á annað borð efla hag neytandanna í hinum ýmsu
löndum og styðja að því, að viðskiptalíf Norðurálfunnar
geti orðið sem heilbrigðast, verða þeir að gera það, sem i
þeirra valdi stendur til að brjóta niður þessa múra.
Samsteypur.
Það er ekki hyggilegt í alþjóðasamvinnu fremur en í
samvinnustarfsemi einstakra landa eða héraða að setja
sér fyrir fram fastar og óbreytanlegar reglur um, hve-
nær og hvernig skuli hafizt lianda í einstökum tilfellum.
Vér samvinnumenn verðum að haga oss í því efni eftir
ytri ástæðum og láta þar til vor taka sem þörfin er brýn-
ust. f alþjóðasamvinnu verður sérstaklega að taka tillit til
þeirrar þróunar, sem átt hefir sér stað í alþjóðaviðskipt-
um, sem rekin eru af einstaklingum. Starfsemi sú er al-
þjóðasamsteypur og hringar hafa með höndum, og nú
vex hröðum fetum, hefir á mörgum sviðum leitt til svo
mikillar misnotkunar á valdi og svo gífurlegrar verðhækk-
unar, að nauðsyn ber til, að samvinnumenn hefjist handa
um að taka hana í sínar hendur. Ef við lítum á einstakl-
ings viðskiptalífið í Norðurálfunni eins og það er nú, sjá-
um við þegar í stað, að iðnreköndum hefir í mörgum til-
fellum tekizt bæði að yfirvinna þær hindranir, sem toll-
múrarnir leggja á leið þeirra, og sömuleiðis að sigrast á