Samvinnan - 01.03.1929, Page 42

Samvinnan - 01.03.1929, Page 42
36 SAMVINNAN verðbréfa í kauphöllum, listaverka eða húsmuna á upp- boðum. Það hefir engin áhrif á framleiðsluna, þótt verð- bréf eða ríkisskuldabréf, málverk eða hús skipti um eig- anda. Þar er aðeins um lögfræðilega afhendingu að ræða. Slík viðskipti eru því viðfangsefni lögfræðinga, en ekki hagfræðinga. Vér munum því láta þau liggja á milli hluta, en snúa oss að almennum viðskiptum. 2. Það er viðskiptunum að þakka, að hver mað- ur getur hagnýtt sérgáfur sínar og unn- ið það, sem honum er bezt við hæfi. Ef engin viðskipti ætti sér stað, ef hver maður yrði sjálfur að afla sér allra nauðsynja sinna, og gert vœri ráð fyrir, að lífsþarfir mannsins greindist í tíu þætti, yrði hver maður yrði að kunna tíu iðnaðargreinir. Sama væri, hvort mönnum færist þau verk vel eða illa úr hendi, menn gæti ekki miðað störf sín við hæfi- leika sína, heldur við þarfir sínar. En frá því, að viðskipti komu til sögunnar, er þessu allt öðru- vísi varið. Þegar hver maður getur, með aðstoð viðskipt- anna, eignazt allt sem hann þarfnast, getur hann varið kröftum sínum og hæfileikum til þeirra starfa einna, sem honum lætur bezt. Nú miða menn framleiðslu sína e k k i við eigin þarfir, heldur við hneigðir sín- a r o g g e t u. Áður en viðskipti þekktust framleiddi hver maður það, sem var honum sjálfum þarfast og nauð- synlegast. En nú getur hver maður framleitt það, sem honum er auðveldast og geðfeldast. Með því móti er allt miklu greiðara og einfaldara. Kostir viðskiptanna eru mjög líkir þeim, sem verka- skiptingunni fylgja, og margir hinir sömu. Munurinn er sá, að kostir viðskiptanna eru miklu fleiri og stærri. Væri viðskipti engin til, myndi samtök og verkaskipting undir því komin, að samverkamennimir kæmi sér saman um alla hluti fyrir fram. Þeir yrði að byrja á að skipta með sér hlutverkum, áður en samstarfið hæfist. En vegna við- skiptanna er slíkt óþarft, og þess vegna er verkaskipting- in ekki bundin við einstakar verkstofur eða heimili, held-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.