Samvinnan - 01.06.1973, Qupperneq 7
Alfred Tennyson (1809-
1892), enskt ljóðskáld og lár-
viðarskáld Breta 1850, var
einkar vinsæll maður. Ung
kona hafði alllengi alið á
brennandi löngun til að hitta
eftirlætisskáld sitt., Tennyson
lávarð. Um síðir fékk hún ósk
sína uppfyllta. í garðboði var
hún kynnt fyrir Tennyson og
átti meira að segja því láni að
fagna að fá að sitja við hlið
hans meðan á borðhaldi stóð.
Hún bryddaði uppá ýms-
um umræðuefnum í því skyni
að koma af stað samtali sem
gæti dregið samvistir þeirra á
langinn, en af einhverjum á-
stæðum gengu samræðurnar
mjög treglega. Skyndilega of-
bauð skáldið ungu konunni
með því að segja formála-
laust:
— Madame, lífstykkið yð-
ar er of þröngt.
— Nei, ég get fullvissað yð-
ur um, að svo er ekki, sagði
hún agndofa.
— Jú, víst er það of þröngt.
Ég heyri braka í því.
Nú var hinum unga aðdá-
anda nóg boðið, og hún flýtti
sér burt.
Jafnskjótt varð hún þess
vör, að Tennyson kom á eftir
henni, og endaþótt hún reyndi
að komast undan honum,
tókst honum að ná til hennar,
þar sem hún hafði tekið sér
stöðu í hópi annars fólks í
samkvæminu.
— Madame, sagði Tenny-
son þegar hann var kominn
alveg til hennar, má ég biðja
yður afsökunar? Það var ekki
lífstykkið yðar, sem ég heyrði
braka í, heldur lief ég komizt
að raun um, að það voru nýju
axlaböndin mín.
Carl Thiersch (1822-1895),
þýzkur læknir og prófessor í
skurðlækningum í Erlangen
og Leipzig, varð við þeirri
bón konungsins í Saxlandi að
hann fengi að vera viðstaddur
skurðaðgerð. í tilefni hinnar
konunglegu heimsóknar fram-
kvæmdi Thiersch aðgerð á
sjúklingi, sem varð að láta
taka af sér vinstri fótinn. Þeg-
lE
z
<
x
Jl
<
Q
>
X
MALLORCA
Verð frá 19.800
Brottför viku- og hálfsmánaðar-
lega. Beint þotuflug báðar leið-
ir. Frjálst val um dvöl í íbúðum
í Palma, Magaluf og Arenal.
Eftirsóttu hótelin, E1 Cid, Coral
Playa, Cala Blanca, Melia Maga-
luf, Playa de Palma, Luxor o.fl.
Eigin skrifstofa Sunnu í Palma
með íslenzku starfsfólki veitir
öryggi og þjónustu. Fjölbreyttar
skemmti- og skoðunarferðir.
COSTADELSOL
Verð frá 19.900 á dýrasta tíma
sumarsins.
Brottför hálfsmánaðarlega frá
júlí út september. Beint þotu-
flug báðar leiðir. Sunna hefur
samið um fastan herbergjafjölda
á eftirsóttum hótelum og íbúð-
um í Torremolinos, sem er eft-
irsóttasti baðstrandarbaerinn á
Costa del Sol. Sunna hefur
valda íslenzka fararstjóra á
Costa del Sol og skrifstofuað-
stöðu. Frjálst val um dvöl á
glæsilegum hótelum Principe
Ottoman, Las Palmeras Alhoa
Playamar.
KAUPMANNA-
HÖFN
Brottför í hverri viku: Innifalið:
beint þotuflug báðar leiðir, gist-
ing og tvær máltíðir á dag.
Eigin skrifstofa Sunnu í Kaup-
mannahöfn með íslenzku starfs-
fólki. Hægt að velja um dvöl á
mörgum hótelum og fá ódýrar
framhaldsferðir til flestra Evr-
ópulanda með dönskum ferða-
skrifstofum. — Nú komast all-
ir ódýrt til Kaupmannahafnar.
Allra leiðir liggja til hinnar
glaðværu og skemmtilegu borgar
við sundið.
ÝMSAR FERÐIR
Rínarlandaferðir.
Ekið um Danmörku og Þýzka-
land, dvalið í nokkra daga í hin-
um glaðværu og fögru Rínar-
landabyggðum. Nokkrir dagar í
Kaupmannahöfn.
Norðurlandaferðir.
Dvalið í Kaupmannahöfn og
farið í bílaferðalag í viku um
Svíþjóð og Noreg. Gullið tæki-
færi til að komast ódýrt til
Kaupmannahafnar og í ferða-
lag um Svíþjóð og fegurstu hér-
uð Noregs.
Róm og Sorrento.
Hægt er að velja um marga
brottfarardaga með viðkomu í
Kaupmannahöfn.
7
(ERflASKRIFSTOFAN SUNNA BANKASTRIEII ® 1640012070