Samvinnan - 01.06.1973, Blaðsíða 30

Samvinnan - 01.06.1973, Blaðsíða 30
Fyrsti skóladagurinn. Eðlilegur vöxtur allra hœfileika nemandans hlýtur að vera markmið allrar kennslu. bjuggu til orðskviðinn „Bókvitið verður ekki látið í askana“. Þeim var vorkunn, meðan erfitt var að fylla askana. Nútíma- spekingar hafa búið til nýtt orðtak: „Bókvitið verður í askana látið.“ Það væri ekki nema gott eitt um þetta orð- tak að segja, ef ekki leyndist bak við það sú hugsun, að það eitt sé einhvers virði, sem í askana verður látið. Þá væru nú- tímaspekingarnir sízt vitrari en þeir gömlu. Ég held, að góður skóli sé því að- eins góður, að hann efli fróðleiksfýsn og þroskaþrá nemandans, án þess að alltaf sé hugsað um svokallað hagnýtt takmark. Stephan G. Stephansson varð einhver gagnmenntaðasti íslendingur, sem uppi hefur verið á þessari öld, og kom hann aldrei í annan skóla en skóla lífsins. Það má segja, að eftir grunnskóla íslenzkrar sveitamenningar hafi hann numið í framhaldsskóla heimsmenningarinnar. Hann komst svo að orði: „Þó tekjulaust sé gullið vits og vona, að vita það en leita og grafa þó og þykjast aldrei nema af því nóg. Oss finnst það heimskt, en samt er það nú svona.“ Og það er víst, að hefðum við íslend- ingar ekki leitað og grafið eftir þessu gulli vits og vona, þótt tekjulaust væri, ættum við enga þá fjársjóði, sem við telj- um nú dýrmætasta og gefa okkur til- verurétt og skapa okkur virðingu meðal þjóða heims. Ferðin sem aldrei var farin En þar sem ég minntist á grunnskóla íslenzkrar sveitamenningar, þá ber ekki að skilja það svo, að ég telji hana full- nægja menntunarþörfinni nú á tímum, þótt enn kunni hann að geta nokkru miðlað. Og víkjum þá örfáum orðum að hinu svonefnda grunnskólafrumvarpi. Um það hefur verið allmikið rætt og af misjafnlega miklum skilningi. Ég skal því ekki fara um það mörgum orðum að þessu sinni. í þvi frumvarpi tel ég ýmis- legt horfa til bóta, ekki sizt fyrir lands- byggðina, ef það verður framkvæmt, eins og gert er ráð fyrir. Og þá kemur mér í hug ferðin, sem aldrei var farin. Þá á ég þó ekki við hina bráðskemmtilegu ritgerð Sigurðar Nordals með þessu nafni nema sem samlikingu. Ég á hér einmitt við þá skólalöggjöf, sem við búum við eða ætt- um að búa við, ef allt væri með felldu, en hefur aldrei komizt að fullu til fram- kvæmda. En það er einmitt sá þátturinn, sem ég tel einna merkastan í núgildandi löggjöf, sem aldrei hefur komizt í fram- kvæmd, en þar á ég við verknámsdeild- irnar. Það er ekki nægilegt að setja þá nemendur, sem tregari eru til bóknáms, í sérstakar deildir og kenna þeim ofur- lítið meira föndur, þegar engin tilraun er gerð til að tengja verknámið atvinnu- lífinu. Nú sé ég hvergi minnzt á þetta verknám i hinu nýja frumvarpi. Með öðr- um orðum, hér er um algera uppgjöf að ræða. Verknáminu voru aldrei sköpuð við- unandi skilyrði, og ef svo á að fara fram, þá er auðvitað eins gott að sleppa því alveg. Ég hygg að þeir, sem sömdu nú- gildandi lög, hafi gert sér ljóst, að mynd- arlega útfært verknám gæti ekki aðeins orðið lyftistöng atvinnulífsins, heldur og að verklegt nám stuðlar engu siður að andlegum þroska en margur bóklestur. Það hafa verið færð mörg rök bæði með og móti lengingu skólaskyldunnar, og hafa þar báðir aðilar nokkuð til síns máls. En hér eins og víðar veltur þó mest á framkvæmdunum. í 27 ár höfum við búið við 8 ára skólaskyldu, en hún er ekki komin enn til framkvæmda i nokkr- um skólahéruðum. Ennþá ein ferðin, sem aldrei var farin. En ef sá einstefnuakstur helzt í íslenzkum skólamálum, að allt framhaldsnám sé miðað við mennta- skólaleiðina, og að stúdentsprófið sé til dæmis í starfsmati metið stórum hærra en önnur hliðstæð menntun, og að öll lokapróf þurfi helzt að kallast háskóla- próf til þess að hljóta almenna virðingu og viðurkenningu stjórnvalda, þá verður ekki allt fengið með því að lengja skyldu- námið um eitt ár. Það vita allir, sem við það vilja kannast, að margt af því, sem kennt er í framhaldsskólunum okkar, hef- ur ekki neina hagnýta þýðingu fyrir all- an fjöldann, og menningarlega hliðin er efalaust oft vafasöm. Stærðfræði er sann- arlega heillandi fræðigrein fyrir þá, sem hneigðir eru fyrir hana, og mörgum veit- ir hún spón í askinn. En er nokkurt vit í því, að einstaklingi sé lokuð leið til hjúkrunarnáms vegna þess, að hann var slakur í algebru? Ég veit dæmi þess, að slíkt hafi gerzt. Þessir sundurlausu þank- ar eru víst orðnir nógu margir, svo að nú skal staðar numið. Við skulum ljúka þeim með þvi að vitna aftur í Klettafj alla- skáldið, sem aldrei settist á skólabekk, en varð þó flestum öðrum menntaðri. Hann kveður svo: „Þitt er menntað afl og önd eigirðu fram að bjóða: hvassan skilning, haga hönd, hjartað sanna og góða.“ Menntunin er nefnilega ekki fyrst og fremst það, sem maðurinn veit, jafnvel ekki það, sem hann kann eða getur, held- ur það sem hann er. + 30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.