Samvinnan - 01.06.1973, Blaðsíða 26

Samvinnan - 01.06.1973, Blaðsíða 26
Mótmœli fyrir framan byggingu bandaríska karlmannatímaritsins „Playboy". fordómum karlmannasamfélagsins er, að það tilheyri karlmanninum að vera her- skár; það samrýmist ekki því að vera kvenlegur. Þannig er eitthvað karlmann- legt við herskáa konu, hún er a. m. k. ekki eins og konur eiga að vera. Vítahringur sjálfsmagnandi taugaveiklunar Lævísustu viðbrögð karla gegn upp- reisn kvenna er sú staðhæfing, að status quo sé í rauninni það bezta, lika fyrir konuna sjálfa. Hin rétta kona, sem lifir samkvæmt eðli sínu, sé ánægð með verndun karlmannasamfélagsins. Það séu aðeins taugaveiklaðar og einkennilegar konur sem vilji hafa hlutina öðruvísi. Þess vegna sé ekki hægt að taka mót- mæli þeirra hátíðlega. Þau sýni, að það séu bara þær sjálfar, sem eitthvað sé að. Þessi andstaða gegn uppreisn kvenna hefur valdið mörgum konum vonbrigðum, og þær hafa ráðizt á röng atriði. Sumar kvenréttindakonur hafa gengið svo langt að búa til fræðisetningar um, að kynferð- isleg fullnæging kvenna sé í rauninni óháð karlmanninum og að klítóris-fullnæging sé það bezta; t. d. öfgahópurinn SCUM (Society for Cutting Up Men). Með því að gera manninn geldan er þannig reynt að hefna fyrir vonsvik af völdum karl- mannasamfélagsins, og þannig styrkja fordómarnir óneitanlega sjálfa sig. Og hér er þá kominn vitahringur hinnar sjálfsmagnandi taugaveiklunar — lokuð keðja sem aðeins er hægt að komast hjá með róttækri nýhugsun. Árásarhneigð kemur fram í mörgum myndum, og það að líkja sér við annan Kona œfir karate. þarf ekki að vera bundið við árásar- hneigð. T. d. getur maður líka likt sér við annan með þvi að hafa samúð með hon- um. Árásarhneigð, sem er ekki bundin við taugaveiklun, er ekki hefnigjörn eða eyðileggjandi, en reynir hinsvegar að öðl- ast hluti eða ástand sem eru æskilegir, eða að fjarlægja eða hindra hluti eða ástand sem er óæskilegt. Þannig reynir sú kona, sem er ekki taugaveikluð og skrítin, að útrýma óréttlæti, sem stafar af aldagömlum alhæfingum og röngum líkingum. Tilfinningasviðið víkkar Við getum líka staldrað við og litið á, hvernig fyrirmyndir karlmannasam- félagsins gegnsýra afstöðu okkar út í æs- ar, en þetta hugsum við ekki um dag- lega. Algeng borgaraleg hugsjón segir að par sé reglulega flott, ef hann er hálfu höfði hærri en hún. Ef hæðarmismunur- inn verður meiri eða minni en þetta, þá samsvara þau sér ekki vel. Þetta fagur- fræðilega mat kemur sennilega hvergi annarsstaðar frá en hinni kristnu kreddu um að konan eigi að vera manni sínum undirgefin og þar með eftirbátur hans. Þetta er dæmigert uppá það að taka hlutina bókstaflega — eða myndgera þá — en það einkennir bæði fordóma og taugaveiklun. Nú á dögum sér maður að einstaka karlmönnum finnst sjálfsagt, að þeir gæti ungbarna, ef ytri aðstæður eru þannig, að betra sé að móðirin vinni úti. Margir þeirra láta í ljós, að þetta sé ekki bara hagkvæmt, heldur finnist þeim þeir bind- ast barninu á þann hátt, sem þeir finna ekki í sambandi við seinni börn, sem þeir eignast, sem móðirin gætir mest. Þessu mundu fáir karlmenn af síðustu kynslóð hafa trúað án þess að karlmennsku þeirra væri misboðið á einn eða annan hátt. Hér er um það að ræða, að tilfinningasvið þessara manna víkkar, það fær meira rými; tilfinning sem konur hafa hingað til verið einar um. Þetta er annað dæmi um samlíkingu gegnum samkennd, en því Bandarískar kvenréttindakonur í kröfugöngu. miður kemur hún næstum eingöngu fram í forréttindahópum, þar sem framtíðin er í stórum dráttum örugg og barátta kynjanna er ekki endilega tengd stétta- baráttunni. Það er auðveldara fyrir föð- ur, sem er við nám, að taka að sér hlut- verk móðurinnar, meðan hún vinnur fyr- ir þeim, ef hann veit, að eftir nám verði hann í meira áliti og vinni sér meira inn en hún getur nokkru sinni gert. Jafnvel í þessu dæmi er ástandið þannig „að pabbi sé vitur“ og „mamma góð“. Hvernig það gengur að brjóta niður hina föstu hlutverkaskiptingu, kemur fyrst í ljós, þegar konur fara að taka að sér hlutverk, sem hingað til hafa aðeins verið ætluð karlmönnum, og þegar konur fara að láta til sín taka í samfélaginu á þann hátt, að þær geti verið jafnháar í loftinu og þeir eða kannski hálfu höfði hærri en þeir, bæði i bókstaflegri og yfir- færðri merkingu — og þau séu enn eins fallegt par, samsvari sér jafnvel og ef hið gagnstæða væri tilfellið. Eða með öðrum orðum, að konan geti bæði verið framtakssöm og árásargjörn, án þess að maðurinn geldist af því. Þá verður um að ræða meiri sanngirni og samræmi milli karls og konu. Það ætti að geta haft áhrif á þróun samfélagsins. Iðnaðar- og af- kastasamfélagið er skapað af karlmönn- um, en það er hugsanlegt að ef konur fengju meiri áhrif á samfélagsþróunina, þá gætu þær fengið eitthvað af þeim til- finningum sem i þær vantar, og það gæti kannski dregið úr því djöfullega af- kastasjónarmiði, sem er að gera tilver- una óþolanlega og jarðarkringluna ónot- hæfa. + 26
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.