Samvinnan - 01.06.1973, Page 12

Samvinnan - 01.06.1973, Page 12
Esther Vilar Flosi Ólafsson Hólmfríður Gunnarsdóttir Steinunn Jóhannesdóttir Sigrún Júlíusdóttir Helga Hjörvar Vilborg Dagbjartsdóttir Þorgeir Þorgeirsson Tamdi karlmaöurinn Miklar umræður hafa á undanförnum árum farið fram um stöðu kvenna í þjóð- félaginu, misréttið sem þær búa við i karlmannasamfélaginu, einangrun þeirra og áhrifaleysi. Hitt hefur sjaldan heyrzt, að þessu kunni að vera öfugt farið, þ.e.a.s. að konan þrælki karlmanninn. Því er þó haldið fram í frægri bók eftir þýzkan lækni og félagsfræðing, Esther Katzer, sem skrifar undir nafninu Esther Vilar. Bókina nefnir hún Der dressierte Mann (Tamdi karlmaðurinn). Hún hefur fært höfundinum morð fjár, en einnig hótun- arbréf af ýmsu tagi; húsmæður hafa jafnvel hrækt á hana á götum úti. Bók- in kom fyrst út í Þýzkalandi fyrir tveim- ur árum og hefur síðan verið þýdd á um tuttugu tungumál, og er verið að þýða hana á mörg fleiri. Víða hefur hún vakið miklar deilur og verið gerður aðsúgur að höfundinum, þegar hún hefur flutt fyrir- lestra um bókina hjá stúdentum og öðr- um áhugahópum. Mun Vilar hafa fengið slæma útreið hjá rauðsokkum á Norður- löndum, þegar hún kappræddi við þær um bókina. Esther Vilar er 37 ára gömul. Faðir hennar var gyðingur, sem flúði Þýzkaland á valdadögum nazista og settist að í Arg- entínu. Þar lagði hann stund á búskap. Kona hans var ekki gyðingur, heldur mót- mælendatrúar. Þau hjónin skildu þegar dóttir þeirra var ung, og ólst hún síðan upp hjá móður sinni. Hún reyndist hinn mesti námshestur, enda lauk hún prófi í læknisfræði 25 ára gömul. Þá lagði hún leið sína til Vestur-Þýzkalands í því skyni að afla sér framhaldsmenntunar, og var ætlunin að snúa síðan aftur heim til Argentínu. Af því varð ekki. ( Þýzkalandi kynntist hún rithöfundi, sem gengur und- ir nafninu Wagn, og gengu þau í hjóna- band skömmu síðar. Þau hjón skildu nokkrum árum síðar, en hafa haldið áfram að búa saman og annast dóttur, sem þau eiga. Skilnaðurinn stafaði ekki af mis- sætti, heldur einvörðungu af því að þau vildu bæði vera laus við bönd hjóna- bandsins, þó þau héldu áfram að búa saman. Einkum vildi Esther vera sjálfri sér samkvæm og losa mann sinn við það ófrelsi, sem hún telur felast í hjónaband- inu. Fyrir nokkrum árum kynntust þau Vilar og Wagn bandarískum auðmanni, sem síðar settist að í Genf. Hann hjálpaði þeim til að stofna útgáfufyrirtæki, sem þau hafa unnið við síðan. Fyrirtækið gefur einungis út bækur eftir þau sjálf. Áður en Vilar gaf út „Tamda karlmanninn", hafði hún samið og gefið út skáldsögu og tvö ritgerðasöfn. Allar fjölluðu þær að meira eða minna leyti um sama efni og metsölubókin, þ. e. ófrelsi karlmannsins. Mesta vinnu lagði hún í fjórðu bókina, dvaldist m. a. um skeið í New York til að viða að sér efni í hana. Bókin kom út snemma árs 1971, en vakti ekki telj- andi athygli fyrr en gerður hafði verið um hana sjónvarpsþáttur, sem var sýnd- ur seint á árinu. Eftir það hefur Vilar ekki þurft að hafa neinar fjárhagsáhyggj- ur. Við birtum hér stuttan útdrátt úr þess- ari umdeildu og umtöluðu bók ásamt við- brögðum nokkurra íslendinga við henni. Sjálfsagt munu ýmsir fleiri hafa hug á að láta í Ijós álit sitt á bókinni eða þeim útdrætti úr henni, sem hér birtist, og mun Samvinnan með ánægju birta slíkar grein- ar eða lesendabréf. • Öfugt við karlmanninn er konan manneskja sem vinnur ekki. Hér væri vel hægt að ljúka skilgreiningunni — því miklu meira verður varla um hana sagt — ef hugtakið manneskja væri ekki alltof víðtækt og óljóst til að skil- greina bæði karl og konu. Mennsk tilvera býður uppá val milli lægra lífsstigs, sem er nátengt lífs- stigi dýra, og æðra lífsstig, sem er andlegt. Konan velur tvímælalaust lífsstig dýrsins. Æðsti draumur hennar er líkamleg vellíðan, bú og möguleik- inn að geta þar óhindrað fullnægt varphvöt sinni. Talið er sannað, að karlar og konur fæðist með nokkurnveginn sama and- lega útbúnað, þannig að ekki sé fyrir hendi neinn upprunalegur gáfnamis- munur milli kynjanna. En það er líka alþekkt, að hæfileikar sem ekki eru þroskaðir hjaðna og hverfa. Konur hagnýta ekki sínar andlegu gáfur; þær kurla hæfileika sína til að hugsa, og eftir nokkurra ára dreifða og ó- skipulega heilaþjálfun komast þær á stig sem kalla mætti annars flokks óafturkvæða heimsku. • Hversvegna hagnýta konur ekki heilabúið? Þær hagnýta það ekki, vegna þess að þær þurfa ekki á að halda neinskonar skilningsgáfum til að draga fram lífið. Það væri fræði- lega hugsanlegt, að fögur kona, sem væri á lægra gáfnafarsstigi en sjimp- ansi, gæti samt látið að sér kveða í mannlegu umhverfi. í síðasta lagi um tólf ára aldur hætt- ir konan að þroska sína andlegu hæfi- leika — en á þeim aldri hafa flestar konur afráðið að gera vændi að lífs- starfi sínu, þ. e. a. s. láta karlmann vinna fyrir sér gegn því að þær veiti honum með vissu millibili afnot af kynfærum sínum. Konan getur vissu- lega haldið áfram að mennta sig og krækja sér í allskonar próf og gráð- ur — því karlmaðurinn heldur að kona sem hefur lært eitthvað utanað viti líka eitthvað (lærdómsgráða eykur semsé markaðsverðmæti konunnar) — en í reyndinni skiljast hér endan- lega leiðir kynjanna. Allir möguleik- ar til samskipta og samneytis karls og konu hverfa úr sögunni á þessum tímamótum — og eiga ekki aftur- kvæmt. • Þessvegna eru ein af afdrifa- ríkustu mistökum karlmannsins þau, að hann lítur á konuna sem jafningja sinn, þegar hann metur hana, þ. e. a. s. lítur á hana einsog manneskju sem sé á sama plani og hann sjálfur að því er varðar tilfinningar og hugsun. Karl- maðurinn getur fylgzt með hegðun konu sinnar, hlustað á tal hennar, með eigin augum séð við hvað hún er að fást, og með hjálp ytri tákna ráðið í, um hvað hún er að hugsa — en í öllu þessu miðar hann við sitt eigið gildismat. Hann veit hvað hann sjálf- ur mundi segja, hugsa og gera í henn- ar sporum. Og þegar hann — í sam- ræmi við sinn eigin mælikvarða — virðir fyrir sér hörmulegan árangur 12

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.