Samvinnan - 01.06.1973, Page 24

Samvinnan - 01.06.1973, Page 24
Gu&finna Eydal UM HLUTVERKASKIPTINGU KYNJAN N A Ef reynt er að henda reiður á, hvernig karlmannsins, og heimilið konunnar. karlar og konur hafa öðlazt svo ólik hlut- Svona er þetta i stórum dráttum ennþá, verk sem raun ber vitni, er oft bent á og fæstar konur eru þess meðvitandi, að að líffræðilegur munur hafi valdið vinnu- þessi skipting sé röng. Þess vegna rísa skiptingunni áður fyrr. í okkar menn- þær ekki gegn henni. Ekki er að búast ingu er það árþúsunda hefð, að karlar við stuðningi frá körlum. Þeir hafa not- fari á veiðar, heyi stríð o. s. frv. Þar sem ið ýmissa forréttinda, og forréttindi láta karlmaðurinn sá um flesta hluti utan menn sjaldnast af hendi ótilneyddir. heimilisins, kom það eðlilega í hans hlut Til að vita, hvar fólk á heima í stétta- að yfirgefa það, þegar smáframleiðslan þjóðfélagi, notum við ýmis hjálpargögn. á heimilunum breyttist i verksmiðjufram- Þar eru aldur, kyn, menntun og staða leiðslu og því um likt. Þá kom barnaupp- þyngst á metunum. Þessi atriði eru ná- eldi og heimilisstörf i hlut konunnar, og tengd, þvi að kyn og aldur ráða oft miklu þar með fengu kynin gjörólík hlutverk. um það, hvort maður hlýtur menntun, og Atvinnumarkaðurinn varð yfirráðasvæði þá hvaða menntun maður fær. Menntun og kyn ráða meðal annars því, í hvaða stétt maður lendir og hvaða hlutverki maður gegnir i samfélaginu. Hvernig kynið eitt ræður stöðu manns, kemur skýrast í ljós i hinu hefðbundna húsmóðurhlutverki konunnar; konur meta sig gjarnan eftir því, hvernig þeim tekst að halda heimili og hvernig þær sjá um börnin. Hvernig stendur á því að uppreisn kvenna gegn kynj amisrétti hefur átt svo erfitt uppdráttar? í grófum dráttum má segja, að konan hugsi enn um börnin, manninn og heimilið, að fáar konur leggi út í langskólanám, flestar vinni frekar meðan „hann“ er við nám, og ef þær leggi út i eitthvert nám, þá velji þær gjarnan eitthvað sem hæfir kvenhlutverki þeirra, svo sem fóstra, kennari eða hjúkrunar- kona. Það gæti nefnilega komið sér vel að hafa einhverja menntun til að hlaupa uppá, ef hana langar eða hún þarf að vinna úti. Af hverju er þessu svona farið? Eru þessi hlutverk aðeins ætluð konum, og er það eðlilegt, að þær velji störf í sam- ræmi við kyn sitt og eðli, eða er eitthvað annað að verki, og þá hvað? Fárra kosta völ Konur víða um heim hafa bundizt sam- tökum um að reyna að gera konuna „frjálsa“ og sýna henni fram á, að hlut- verk hennar í samfélaginu hingað til sé ekki meðfætt, ekki háð hormónastarf- semi, og stafi ekki af því að sálarlíf henn- ar sé svo frábrugðið sálarlífi karlmanns- ins, heldur sé þessi fasta hlutverkaskipt- ing afleiðing af því samfélagi sem við lifum i; hvernig það hefur ákvarðað og ákvarðar, hvað hæfi konum og hvað karl- mönnum. Einnig hafa kvenréttindakonur reynt að vekja kynsystur sínar til vit- undar um rétt sinn til að geta hugsað og skilið eitthvað af því sem gerist i um- heiminum, sem kannski stuðlaði að því að konur fengju meiri sjálfsvitund og innihaldsmeira líf. Það eru aðallega kon- ur á þrítugsaldri, sem hafa tekið þátt í umræðum um þessi mál; þær hafa oft fengið tiltölulega góða menntun (a. m. k. miðað við konur), og þær tilheyra oftast efri stéttum þjóðfélagsins. Hvort þær hafa lent þar fyrir tilverknað mannsins eða af eigin rammleik skiptir ekki öllu máli. Það sem máli skiptir er, að þessi hópur kvenna hefur orðið minnst fyrir barðinu á kynj amisréttinu; hann er minnst kúgaður, og því engin furða að hæst heyrist í honum. Á sama hátt eru það ekki verst menntuðu negrarnir sem blanda sér i umræður um kynþáttamis- rétti, og lægst launuðu verkamennirnir þegja oft um launamisrétti. Þannig er það einnig um konurnar milli 35 og 70 ára; þær ræða sjaldnast um kynjamis- rétti, þó þær verði mest fyrir barðinu á því. Margar þessara kvenna hafa orðið fórnarlömb taugalyfja, þegar tilveran hefur orðið þeim óbærileg. Þær hafa allt- af átt að vera til taks þegar einhverjum í fjölskyldunni þóknast, og síðan, þegar notagildi þeirra fer að minnka, finnst þeim þær ekki hafa tilverurétt sem kven- 24

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.