Samvinnan - 01.06.1973, Qupperneq 49
Pétur Hafstein Lárusson:
Kveðja til Samtaka frjálslyndra og
vinstri manna
Þaö var stofnaður flokkur
og flokksfýlan hulin í orðinu samtök
nú átti að herja á spillingu annarra flokka.
Kokhraustur oflátungur kom vestan af fjörðum
hann brosti og lét kjósa sig formann
og ryðgaður gaddavírsbaugur sveif yfir haus
hans.
Þá var kátt í bróðurbyrgi hins andlega föður
suður á Marbakka.
En skjótlega kom upp kurr í liðinu,
það fannst maður með skoðun.
Hann kunni ei beygjum né bukti
og svo var um fleiri.
Þá reiddist foringinn vestan af fjörðum
og fór í rlkisstjórn
nauðugur viljugur.
Nú byrjaðl ballið,
það var bitlingarall
og Mörlandinn eignaðist vasaútgáfu
af Madame Pompadour
í líki feitrar frúar
sem átti sér forðabúr
í vestfirzku hjarta
sem sló í takt við liðna tíð.
Aumingja ég,
sem í ungæðisskap lagði trúnað á orð lýð-
skrumara
og bjartsýnna manna,
gerðist heitbundinn
og hugðist frelsa föðurlandið
undan fargi nefnda og ráða,
ég horfði upp á flokkinn minn punga út
nefndum og ráðum
til að skipa í gæðinga sína.
Og því er ég særður,
að hugsjónir mínar eru svívirtar,
vonir mínar brostnar,
trú mín á heiðarleika stjórnmála að engu gerð.
Réttlætið er orð vindsins
sem næðir yfir víðáttu hræsninnar,
falsið smjattar á ríkiseplinu
og mettar lygina
með úrgangi sínum.
Jón Laxdal Halldórsson:
LJÓÐ
Undir fögrum klæðum
og stroknu hári
rennur ekkert blóð
í brosandi andliti
með tóna í bakgrunn
blika engin augu
við varðeld um nótt
undir þéttu laufþykkni
brennur engin glóð
í lifandi geislum
feykir vindur blöðum
á enga jörð
undir fossi synda fiskar
með bros á vör
í engu fljóti
í æðandi eyðimörk
fýkur sandur
í enga hóla
í borg blika fánar
og likamir þjóta
með enga sál
Sprengjan fellur úti í
öðrum löndum trúðu því.
Sízt mun okkur saka.
Amerískur er hér her,
sem að sér mun þig taka.
Sofðu nú, og sofðu rótt.
Sumum búin löng er nótt.
Bium, bíum blaka.
Amerískur er hér her,
sem yfir þér mun vaka.
(Stælt og staðfært)
ÞEIR KOMU YFIR HÖFIN
Frjóangarnir
leituðu sólar
og brutust
undan hjarninu
uxu og döfnuðu
urðu græn tún
tróðst
safarík slægjan
járnuðum hælum
Arthúr Björgvin:
JÁTNING
víst játa ég fegurðinni
mjöll sem fellur
í morgunsárið
mjöll sem fellur
á myrka jörð
einsog tilað eyða
þurrka þurt og eyða
hverju angri
hverri hryggð
víst játa ég fegurðinni
en segðu mér þú
sem þýðast syngur
hvort til muni vera fegurð
svo hrein
eða mjöll svo hvít
að hún megni að afmá
afskræmda drætti
úr ásýnd jarðar
stilla stríðsópin
andartak
Hólmfríður Jónsdóttir:
VÖGGUVÍSUR HERNÁMSINS
Ekki að gráta unginn minn
af því mamma og pabbi þinn
áfram tryggja um árin,
að amerískur er hér her,
sem ætlar að þurrka tárin.
Afla mun hann auðsins til
alls þú girnist — hér um bil,
þó marga þurfi að meiða.
Allir fæðast feigðar til,
en fjöldi til að deyða.
Magnús Fjalidal:
874—1974
HUNDRAÐOGFIMMTÍ UÞÚSUND
KRÓNA
SKRÆLINGJAGRÁTUR
Ingó var fyrst án verulegs þrælahalds
að opna fasteignamiðlun
874 eða þar um bil í Reykjavík
höfum vér
síðan
selt land
ráð
á frjálsum markaði
eru góðra gjalda verð
vér höfum líka drýgt
þetta
með smá kaup mennsku
herja til þess að verja
sjónvarpsmagnara
þá sem vér höfum loftnetjazt
þá sem ásamt ioðnunni eru
kynfæri fjall
konunnar minnar
sýkt menning vor eingetin
stendur á haus
sem er sköllóttur
en nú eru fjallkonur símsvarar
sögu
íslands sem þar leigja
en skáldanna svör
deyja
eins og bros á vör
forsætisráðherra: ÞESSARAMERKUTlMA
MÓTAVERÐURMINNSTÁVIÐEIGANDIHÁTT
ÞVÍRÍKISSTJÓRNINFLÝTUREKKISOFANDI
AÐFEIGÐARÓSINÉLEGGURÁRARÍBÁT
ÞEGARÍHARÐBAKKANNSLÆRÞVÍÖLLÉL
BIRTIRUPPUMSÍÐIR
OGOGOG
en sérðu ekki að þing
mennirnir eru að fara upp á smjörfjall
konuna sem mamma
í því
er engin fróun sjálf
stæði finnst hér hvergi elskan
kondu í heillandi ferð fyrir hagstætt verð
drekktu þorsta þínum í gosi
í peningagjá Alþingis vesalings
róninn að vera svona fullur
af lyginni skulum vér þekkja
þá oss 'á fasteignasölu Ingólfs Arnar
vantar útsýni
í fleiri kubbablokkir á hvolfi
jesús leitaðu hófanna
3074 skal ég selja
upp
og fsland
f.o.b.
49