Samvinnan - 01.06.1973, Page 59
Framhald af bls. 9
undi þvílík raun að svara
þessum bréfum, að hann afréð
að láta prenta nokkur hundr-
uð eintök af eftirfarandi bréfi,
sem hann sendi bréfriturum:
„Kæri herra.
Beztu þakkir fyrir bréf yð-
ar og mcðfylgjandi Ijósmynd.
Að mínum dómi líkist þér mér
augljóslega miklu meira en
nokkur annar hinna mörgu
tvífara minna. Ég get jafnvel
kveðið svo fast að orði, að þér
líkist mér á meira áberandi
hátt en ég geri sjálfur. Ég hef
í hyggju að nota ljósmyndina
af yður í stað spegils þegar ég
raka mig.
Með vinsemd og þökk.
Mark T\vain.“
Eftir að Rússakeisari hafði
lagt fram tillögur sinar um af-
vopnun sendi hinn kunni frið-
arpostuli William T. Stead
fyrirspurn til Marks Twains
þess efnis, hvaða afstöðu hann
tæki til tillögunnar.
Stead barst eftirfarandi bréf
frá rithöfundinum:
„Kæri herra Stead! Keisar-
inn er reiðubúinn að afvopn-
ast! Ég er reiðubúinn að af-
vopnast! Reynið að safna öll-
um hinum! Það ætti ekki fram-
ar að vera svo erfitt!
Yðar Mark Twain.“
Áskriftar-
sími
Sam-
vinnunnar
er
38900
Samkvæmt skýrslum um sjúklinga, sem látizt hafa
af völdum kransæðastíflu á Landsspítala íslands
síðustu árin, dóu stórreykingamenn í þeim hópi
12 árum yngri en hinir, sem ekki höfðu reykt.
Þetta er skýrt íslenzkt dæmi um tengsl
sígarettureykinga og kransæðasjúkdóma.
Láttu sorglega reynslu annarra verða þér
víti til varnaðar.
59