Andvari - 01.08.1961, Qupperneq 17
ANDVARI
FRÁ HAWAII
111
Hú\a-dans á Hawaii. — Ljósm.: B. Th.
ríkjanna gerðu allt sem þau gátu til að bægja sykrinum frá Hawaii frá bandarísk-
um markaði, en með hagkvæmum samningi, sem einum af konungum Hawaii
tókst að gera við Bandaríkjastjórn, og vegna sívaxandi framleiðslutækni, varð
þróunin sú, að sykurframleiðslan varð gífurlegt fjárhagsatriði, og þeir, sem
höfðu trvggt sér ræktunarland á Hawaii, urðu nú á skömmum tíma vellauð-
ugir. Enn kom önnur stóryrkja til sögunnar: ávaxtaræktun, og þá aðallega
ananasræktun. Þessi ávöxtur þroskast seint, en er ákaflega ljúffengur og selst
um víða verökl í stórum stíl. Ræktun ananas, unz jurtin ber ávöxt, tekur nærri
tvö ár og hitinn má helzt aldrei verða minni en 16 stig á Celcíus. Moldin, þar
sem ananasjurtin er ræktuð, er rauð á lit, og er einkennilegt að horfa yfir hinar
geysivíðáttumiklu, grænbláu ananasekrur, sem bílvegir liðast um eins og rauðir
þræðir. Ávaxtaræktun og ræktun sykurreyrs voru um langt skeið aðaltekju-
greinar Hawaii, og hinar einu sem nokkuð kvað að á heimsmælikvarða, en nú
hafa eyjarnar enn meiri tekjur af ferðamönnum og hinni miklu flotastöð í
Pearl Harbor.
Hvarvetna heyrði maður á Hawaii sagðar gamansögur og skrýtlur frá dög-
um trúboðanna, sem virðast sumir hverjir hafa gerzt allveraldlegir þegar mögu-
leikar tóku að skapast til auðsöfnunar á eyjunum vegna vaxandi útflutnings-