Andvari

Volume

Andvari - 01.10.1963, Page 67

Andvari - 01.10.1963, Page 67
ANDVARI LEIKRIT GUÐMUNDAR KAMBAN 185 svipbrigðahæfileika, sem getur lýst á sannan hátt yfirþyrmingu Höddu þegar hún sér sig svikna af Ingólfi, og sér hann fallinn fyrir systurinni sem hún hatar og segir að elski eins og rándýr. „Ekki einu sinni systur sinni Iilífir hún þó að hún viti að þú sért eini maðurinn sem mér hefur nokkurn tíma þótt vænt um . . . Eg á engan óvin nema hana. Blóðið scm rennur í æðum hennar er svikari." Með þessu fyrsta verki sínu sýndi Kamban að hann var fæddur leikritahöf- undur. Spennan í þessu vel byggða og ljóðræna leikriti vex, persónurnar dýpka með rás athurðanna. En samt sem áður eru það ekki persónur cða atburðir, sem cru aðalatriðið í leikritinu. Nei, það sem fvrst og frcmst gerir Höddu Pöddu að sterkum sviðrænum harmleik er and- rúmsloftið sem átökin eiga sér stað í. Og það er fyrst og síðast íslenzkt andrúmsloft, sem hreif áhorfendur á frumsýningunni í Konunglega leikhúsinu í Kaupmanna- höfn. Það var andi fornsagnanna og Eddu, sem lék um þetta nútíma leikrit um líf og dauða þriggja persóna. Það finnst í anda leikritsins, í hinum stuttu nreitluðu tilsvörum, í mætti íslenzks geðs sem fólgið er í atburðarásinni en fyrst og fremst í valdi örlaganna. Hér gætir einnig skyldlcika við örlagatrúna í grískum harmlcikjum, og þrátt fyrir ýmsan mis- mun virðast mér þeir eiga eitthvað skylt við sígildar fornbókmenntir Islendinga. Það er varla hægt að færa ncinar heinar sönnur á áhrif frá grískum harmleikjum í Höddu Pöddu. Þau verða ekki fundin í hinu rökræna og hlutbundna og alls ekki í formi. Það verður ekki á þau hent í til- svörum, en aftur á móti í anda leikrits- ins, í helhlænum, sem svo oft hvílir yfir grískum harmleikjum scm hin gömlu skáld slungu svo snilldarlega í verk sín. Það er áorkan þéssarar tilfinningar sem verður hér fyrir okkur. Þegar í öðrunr þætti skynjum við, að Hadda er dæmd til að missa Ingólf til Kristrúnar og okk- ur grunar, að það muni ríða henni að fullu. Eftirfarandi atriði er, með tilliti til þess sem áður hefur gerzt, snjöll og sviðræn leikritun. „Hadda Padda: Ég get það ekki Ingólfur, ég gct ekki lifað án þín. Ingólfur: Mundirðu hafa gleði af lífinu í daglegri samhúð við rnann sem ekki elskar þig. Hadda Padda: (Þegir, stendur og geng- ur að hljóðfærinu, hallast máttvana upp að því). Ingólfur: (tckur fram hringinn og legg- ur á borðið). Hadda Padda: (stendur kyrr). Ingólfur. Það er seinasta bónin sem ég hið þig. Gerðu mér ekki skilnað okkar sárari en hann þarf að vera. Ég er stödd á þínu heimili, þar sem allir hafa mætur á mér. Mér væri óbærilegt að vera hér, eftir að allir vissu þetta. Gerðu það fyrir mig að bera hringinn, þangað til ég er farin hcim. Þess verður ekki svo langt að bíða. Lof- arðu mér því? Ingólfur: (handleikur hringinn án þcss að svara). Hadda Padda: Það cr síðasta hón mín. Ingólfur: Ég lofa því (lætur hringinn upp). Hadda Padda: (horfir á hann á með- an). Á leiksviðinu verða leikstjóri og leikar- ar að leggja áherzlu á helgruninn í svip- brigðum, leik og hrynjandi þessa atriðis. Vonin, sem Hadda Padda tengir við hring- inn, cr dauðadæmd. En það, að hún vill halda hringnum, sýnir okkur hversu stór hennar óhamingjusama ást er. Annars verður leikritið í þriðja og fjórða þætti að harmleik hinnar forsmáðu konu, cins og Vér morðingjar verður harmleikur um
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.