Andvari

Volume

Andvari - 01.10.1963, Page 87

Andvari - 01.10.1963, Page 87
ANDVARI ATHUGANIR Á STÍL HÁVAMÁLA 205 30 b, 31—32, 33 b. 34, 35 b). Viðteng- ingar- eða skal-mynd (modal form) kem- ur hinsvegar fyrir í samtals átta vísuhelm- ingum (1 a, 6 a, 15, 19 a, 30 a, 33 a, 35 a). I næstu 32 erindum (36—67) eru samanlagt 36 vísuhelmingar í framsögu- hætti (36—37, 38 b, 39, 40 b, 41 b, 47— 51, 52 b, 53, 54 b, 55 b, 57, 58 b, 59 b, 60, 62, 64 b, 65, 66). f modal-mynd eru hinsvegar 25 vísuhelmingar (38 a, 40 a, 41 a, 42—46, 52 a, 54 a, 55 a, 56, 58 a, 59 a, 61, 63, 64 a). Idér cru því einnig miklu lleiri setningar í framsöguhætti, en munurinn er sýnu rninni. Einkum er títt, að áskorun i modal-mynd í fyrri vísu- helmingi fylgi staðhæfing í framsögu- hætti í hinum síðari. Þetta er svo algengt, að heppilegt væri að setja þvílík erindi í sérstakan flokk. Ileil erindi í modal- mynd eru tiltölulega sjaldgæf (15, 56, 61). Lok kvæðisins (erindi 65—72, 76—77) eru í framsöguháttarmynd. Vér látum erindin 78—79, 84 og 103 liggja hér rnilli hluta, þar sem það er með öllu óvíst, í hvaða sambandi þessi „stöku erindi“ hafa upprunalega staðið, jafnvel þótt lík- legt virðist, eða minnsta kosti hugsanlegt, að þau hafi tilheyrt Hávamálum I. 7. Ef vér gerum oss þess ljósa grein, hvað í því felst, að Hávamál I hafa frá byrjun á engan liátt verið viðriðin þá hugsmíð, sem býr í nafninu Hávamálum, orðurn hins 1 láva, þá erum vér áreiðanlega miklu nær réttum skilningi á sérleik þeirra og uppruna. Eins og flest Eddukvæðin, hafa Hávamál I — meðan þau lifðu einungis á vörurn manna •— verið í epískri um- gerð, sem alla daga hefur greint, hvern menn hugsuðu sér mælandann vera og við hvaða aðstæður hann talaði. Sá, sem kunni kvæðið og hafði það yfir, hefur ekki tekið að þylja formálalaust; hann hefur kynnt áheyrendum, hvað nú væri á seyði. Gott dæmi um þetta er Grímnis- mál, sem að mestu er goðsögulegt fræði- Ijóð. Kvæðið er ofið inn í goðsögulega frásögn í óbundnu máli og skírskotar til hennar bæði að upphafi (1.—3. erindi) og lokum (51—53). Frásögn umgerðarinnar kann samt að hafa verið einkar einföld og því ekki talið nauðsynlegt að skrásetja hana. I lún hef- ur ekki haft neitt sérstakt fastmótað form. Sá, sem þuldi kvæðið, hcfur byrjað fram- sögnina með fáeinum óbrotnum orðum, sínu sinni hverjum. Þannig er þessu greinilega farið urn Völuspá. Og að lík- indum gildir hið sama um Ilávamál I. 1 fyrstu erindum kvæðisins verður þó greind ljós skírskotun til epískrar um- gerðar utan við kvæðið sjálft. Þau geta tæplega skilizt á annan veg. Það er gest- ur, sem mælir, ferðalangur, sem gengur inn í húsið. Hann heilsar: Gefendur heilir! Hann biður um varma, mat og þurr klæði (3.—4. erindi). Ef til vill eru crindin 2—4 upphafleg byrjun kvæðis- ins, svo scm þeir Guðbrandur Vigfússon og Ivar Lindquist hafa gert ráð fyrir. Þetta er hluti umgerðarinnar, og síðan verður kvæðið hreinræktað eintal, ná- kvæmlega eins og í Grímnismálum. Fyrsta erindið (Gáttir allar . . .) hefur þá af einhverjum samsteypumanni eða afritara verið rifið úr samhengi sínu aftar í kvæð- inu (frá 7. eða 38. erindi, sem bæði eru skyld að efni?). Ilinn nýkömni gestur hefur síðan fræðslu sína: Vits er þörf, / þeim er víða ratar. Vit er sarna og reynsla, kunnátta, mannþekking. Þetta er aðeins léð þeim, sem víða hefur farið og séð, hvernig menn lifa í öðrum byggðum og löndum. Sá einn veit, er víða ratar / ok hefr fjöld of farit, / hverju geði / stýrir gumna hverr (18). Dælt er heirna hvat (5). Þetta er einnig vörn ferðalangsins fyrir því, að hann tekur nú til máls og miðlar öðrum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.