Andvari

Årgang

Andvari - 01.10.1963, Side 96

Andvari - 01.10.1963, Side 96
214 ERIK S0NDERHOLM ANDVARI fordæming, refsing, himinn og helvíti, skilja allt þetta á þann hátt, að þessi hug- tök lifðu í þeim og voru hluti af þeim sjálfum. Nútíðarmaðurinn getur aftur á móti örsjaldan sannfærzt um skoðun, sem varpar skilningsljósi yfir öll fyrirbæri til- verunnar. Nútíðarmaðurinn á enga sam- eiginlega heimsmynd, enga heimsskoðun og ekki heldur lífsskoðun. Aðeins tómið eitt. En tóm leiðir af sér kvíða og öryggis- leysi, sem getur fengið manninn til að grípa hið vesalasta hálmstrá sér til bjarg- ar. Stundum kemur pólitísk ofsatrú í trúar stað, stjórnmálaleiðtogar og hug- myndir þeirra eru tilbeðnar eins og goð- mögn, á sama hátt og sumar vísindalegar vinnutilgátur hafa verið gerðar að eins konar opinberun, til dærnis freudismi og darwinskenning. Ef við nú höldum okk- ur að þessum tveimur „vísindalegu sann- reyndum", sem réðu liigum og lofum á fjórða tug aldarinnar, er lítill vandi að ganga úr skugga um, að á þeim grund- velli hefur reynzt ógerlegt að byggja upp siðakerfi, þar sem trú framþróunarkenn- ingarinnar á rétt hins sterkari og sú trú freudismans, að maðurinn láti algjörlega stjórnast af blindum hvötum, hlutu að leiða til andhverfrar, andfélagslegrar af- stöðu. í þessu sambandi er ekki úr vegi að vekja athygli lesandans á hinum svo- nefnda andlega níhilisma, sem segir, að sérhver ummæli, sem fela í sér matið gott eða illt o. s. frv., hafi aðeins og eingöngu huglægt gildi, þ. e. a. s. að sérhver dóm- ur eða skoðun, sem menn láta í ljós, sé algjörlega háður harla ófullkominni þekk- ingu þeirra og reyndar ófullkomleika mannlegrar þekkingar yfirleitt. Þetta gct- ur vitanlega leitt til þess, að sérhver sann- færing eða trú verði gerð að persónulegri grillu, scm ekki eigi að þurfa að hafa nein áhrif á skoðanir annarra; en hvað er þá gilt eða verðmætt yfirleitt? Á þess- um leiðum stendur maðurinn aftur and- spænis tóminu, tilgangsleysinu og ein- manaleikanum, andspænis óskapnaði, sem veldur ótta. Hér að upphafi máls er einnig vert að gera sér þess grein, að um leið og sam- eiginleg trú dó, hrapaði einnig grund- völlurinn undan sameiginlegu skáldlegu táknmáli. Tökum til dæmis sálm eftir Grundtvig, og við sjáum að hann er full- ur af skírskotunum, sem skiljast aðeins af þeim trúuðu og biblíuföstu, það er að segja öllum sannkristnum mönnum. En áður fyrri skildist þetta táknmál ekki að- eins af menntamönnum, heldur langt út fyrir raðir þeirra, sem venjulega eru taldir fulltrúar hinnar æðstu menntunar. Með allsherjar afkristnun hverfur grundvöll urinn undan þessu samciginlega máli, og þar sem ekki liefur kornið fram nein sam- eiginleg trú, hefur ekki heldur heppnazt að skapa neitt nýtt almennt táknmál, sem allir gætu skilið. Þegar lesendur kvarta undan erfiðleikum við að nota sér nú- tímaskáldskap, er það ekki hvað sízt þessu að kenna: táknmál skáldsins er hans einka- fyrirtæki en ekki almenningseign. Vita- skuld stendur skáldið sjálft oft andspænis miklum og óleysanlegum vanda, því geti hann ekki gert hugmyndir sínar að al- mannaeign og látið þær í ljós með skilj- anlegum táknum, verður skáldskapur hans svo lokaður, að hann á fremur heima í skrifborðsskúffunni en í bókahillum annarra manna. Sízt er að undra, að þessi sundrung og klofningur í lífsafstöðu hafi einnig leitt til upplausnar hinna gömlu bókmennta- forma, og reyndar mætti hið gagnstæða virðast óhugsandi: að reyna að láta algert misræmi í ljós í algjörlega samræmu formi! Skilningurinn á þessu hefur lyrir löngu leitt til þess í Danmörku, að menn hafa t. d. veitt viðtöku rímlausum og hrynjandilausum ljóðum, sem satt að segja hafa verið ofan á í dönskum skáld-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.