Andvari

Volume

Andvari - 01.10.1963, Page 97

Andvari - 01.10.1963, Page 97
ANDVARI DANSKAR BÓKMENNTIR 1940—1960 215 skap síðan Johs. V. Jensen sendi frá sér fyrstu prósaljóðin árið 1906. Nýi skáldaskólinn byrjaði að myndast á stríðsárunum, og hann hélt áfram að vaxa og þróast öfluglega í óró eftirstríðs- áranna, þegar atóm- og vetnissprengjur gerðu tilveruna jafnvcl enn valtari en meðan á sjálfu stríðinu stóð. Hinn ungi skáldaskóli velur sér ljóðið sem helzta tjáningarform, þveröfugt við fyrri kyn- slóð skáldsagna- og leikritahöfunda. Árið 1943 gaf Morten Nielsen út fyrstu bók sína, „Krigere uden vaaben", og á hæla hans komu ung skáld cins og Ole Sarvig, Ole Wivel, Erik Knudsen, Ove Ahild- gaard, Halfdan Rasmussen og Thorkild Bjtírnvig og margir aðrir. Og 1948 sam- einuðust þeir um tímaritið „Heretica", sem varð langáhrifamesta bókmenntaritið á áratugnum 1950—60. Til þessa hóps rná reyndar einnig vel telja hin miklu prósaskáld tvö, H. C. Branner og Martin A. Hansen, en megineinkenni hópsins er afneitun skynsemisstefnunnar, og þó að margir úr hópnum veldu knstilega lausn á lífsvandanum, hafa þeir allir siglt fram hjá kreddum kristindómsins. Þeir leituðu að nýju lífsviðhorfi, eftir að þeir höfðu varpað frá sér hinni úreltu vísinda- legu og pólitísku lausn viðfangsefnanna. Sameiginlega trúðu þeir á eitthvað and- legt, álitu að ekki væri hægt að skýra til- veruna út frá efnisrænum sjónarmiðum, heldur bæri einnig og jafnvel frernur að túlka hana á andlegum forsendum. Skylt viðhorf kona einnig fram hjá ljóðskáld- inu Paul la Cour, sem raunar er lítið citt eld ri, í verki hans „Fragmenter af en Daghog" (1948), og gildi þess fyrir ungu skáldakynslóðina verður ekki ofmctið. Enn fremur er einkennandi fvrir þessi skáld, að þeir líta á manninn sem afmark- aða einingu án samhengis við umheim- inn. Einmanaleikinn er „þau kjör, sem maðurinn á við að húa í dag“, og ein- ungis með því að játa sannleik þessarar setningar er hægt að skilja eðli hins illa og finna síðan leið til að losna af klafa þess, það er komast aftur í samhand, rata aftur til nýrrar, frjórrar samstöðu. I Ieiðar- legt skáld verður því að reyna að ganga þennan einmanans veg til samstöðu, því að skáld á ekki einungis að vera orðsins listamaður, hann á einnig að skilja og skynja og það í enn ríkara mæli en vís- indamaðurinn. Eins og málin standa neyðist því skáldið til þess að lýsa bölvun og ógn einmanaleikans, og hlutverk hans verður að leiða lesendur sínn, sem eins er á komið fyrir, veginn til frelsnndi veru- leika samstöðunnnr. Lykilorð dnnsks skáldskapar á þessu tímahili eru því orð eins og ótti, örvggisleysi, einmanaleiki, óskapnaður, mcðbróðir, ábyrgð, samstaða. Eftir þessar inngangsathuqasemdir, sem ætlað var að sýna í fáum dráttum, hvað verið hefur einkennandi fyrir skáldskap síðustu ára, skal ég nú snúa mér að því að tala um helztu rithöfundana. Einkan- lega verður fjallað um prósaskáldin, því að verk þeirra eru aðgengilegri útlend- ingum heldur cn ljóðin, sem oft eru myrk, en þar fyrir má þó ekki láta sér sjást yfir, að þáttur Ijóðlistarinnar í bók- menntum sjötta tugs aldarinnar var rík- ari en virzt gæti af þessu yfirliti. II Meðal prósaskálda eftirstríðsáranna eru tvö, sem tekizt hefur að ná til alls almenn- ings, vegna þess að horf þeirra við við- fangsefnunum og tillögur til lausnar hafa vcrið almennt einkennandi fyrir tíma- bilið: Martin A. Hansen og H. C. Bran- ner. Martin A. Ilansen fæddist árið 1909 í Stevns Herred á Austur-Sjálandi þar sem faðir hans var smábóndi. Heimilið var mótað af kristilegum anda, og því óx drengurinn upp í hinu gamla fastmótaða
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.