Andvari

Volume

Andvari - 01.10.1963, Page 99

Andvari - 01.10.1963, Page 99
ANDVARI DANSKAR BÓKMENNTIR 1940—1960 217 fram allt má ekki skilja þetta svo, að M. A. H. hafi verið barnalegur afturhalds- maður og haldið, að hægt væri með heimatilbúnum aðferðum að halda lífinu í hinni gömlu menningu gegn framvindu tækninnar. Oðru nær, því að hann sá Ijóst, að þetta væri vitaskuld ekki hægt, en hann vildi halda í lífsviðhorf og mann- skilning bændamcnningarinnar, einingar- sjónarmiðið, sem viðmiðun handa nýrri menningu, er leggja skyldi megináherzlu á Iiið mannlega og samhengi þess við hið guðdómlega, mcnningu, sem ekki glcymdi hinu andlega í manninum. Þetta lífsviðhorf birtist enn skýrar í næstu skáldsögu, „Lykkelige Kristoffer" (1945), sem gerist á siðbótartímanum, en sú var skoðun böfundar, að cinmitt á því tímabili hefði mannleg hugsun fyrst farið að slíta sig úr tengslum við hið guðdóm- lega og hin gamla eining menningarinnar orðið fyrir þeirri upplausn, sem hámarki hefur náð með heimsstvrjöldum aldar vorrar mcð allri sinni ringulreið á sviði menningarlífsins. í sögunni er sagt frá hetjunni Kristoffer, sem fer út í heiminn til þess að berjast fyrir réttlætið og vernda þá vanmegnugu, konur, börn og dygga guðs þjóna. Eftir mörg ævintýri, sem sjaldan eru glæsileg fyrir hina hraustu en heldur en ekki barnalegu betju, kem- ur hann til Kaupmannahafnar og fellur þar scm ósvikin hetja, meðan stendur á hinni raunalegu umsát bæjarins árið 1536. Sagan cr óvægið uppgjör við skynsemis- hyggju nútímans. í samtali við gamla klausturformanninn sannar stjörnufræð- ingur nokkur, að himingeimurinn sé tóm- ur og því sé heldur enginn guð til, öll tilveran skýrist af náttúrulögum, heimur- inn sé cins og vandað úrvcrk. Hinn auð- mjúki herrans þjónn verður samt ekki orðlaús, heldur svarar að við eigum ekki að leita guðs í himninum, heldur hjart- anu, „því að maðurinn er musteri guðs, þó að þar kunni að vera skarn í skotum". Ilið illa og hið góða, Guð og Satan, lifa að klausturmannsins hyggju inni i hon- um sjálfum, og með breytni sinni ræður hann því úrslitum hver sigurinn hafi. Ónnur veigamikil grundvallarhugsun birtist skýrt í bókinni. Bæði klausturfor- maðurinn og hetjan Kristoffcr sanna styrk lífsskoðunar sinnar með þjáningunni og píslarvættisdauðanum. Báðum er þeim lýst sem vanmegnugum mönnum í heimi veruleikans. Þar bíða þeir alltaf ósigur, en innri styrkur þeirra er svo þroskaður, að þeir sigrast á andstæðingum sínum sið- ferðilega, og einmitt með því sanna þeir tilverurétt skoðana sinna. Augljóst er, að böfundurinn hefur hér Krist scm fyrir- mynd. Þessar tvær meginhugmyndir tók höf- undurinn síðan til enn frekari meðferðar í hinum ágætu en torsóttu smásagnasöfn- um, „Tornebusken" (1945) og „Ager- htínen“ (1947) og í ritgerðasöfnunum „Tanker i en skorsten" (1948) og „Mid- sommerkrans" (1956), og hér við bætist svo lítil en mjög efnismikil skáldsaga, „Lögneren" (1950), og með henni endar raunar höfundarferill skáldsins. A öllum þessum verkum eru augljós symbólsk einkenni. í tilraun sinni lil að skilja orsakir menningarkreppunnar fjar- lægist skáldið auk þess enn ákveðnar hin- ar vtri aðstæður, þjóðfélagsástandið, og leggur að sama skapi meiri áherzlu á hið sálræna, finnur alla sökina í hverjum ein- stökum manni, sem raunar er veikur sem einstaklingur, en cf hann gerir sér ljósan ábyrgðarhluta sinn gagnvart mannkyn- inu, verður hann siðferðilega sterkur. Veikleikinn og manngæzkan cru valds- aðilar, og í þessum óhefðbundna kristin- dómi endar höfundarbrautin. I mestu sögunum í smásagnasiifnunum tveimur, einkum þó aðalsögunum „Mid-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.