Andvari - 01.01.1993, Blaðsíða 38
36
HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON
ANDVARI
fátt fram hjá honum. Hann þoldi Hagkaupsmönnum ekki að mæta
óundirbúnir á fundi; þá stóð hann á fætur, sagðist ekki láta eyða tíma
fyrir sér og skeiðaði út. Þau Galina urðu vinir Pálma og Jónínu og
gistu oftast í húsi, sem Pálmi átti þá og Jón, sonur hans, bjó síðar í.
Carter vildi ekki búa á hóteli. Hann og kona hans kunnu vel að meta
Pálma. „ísland er of lítið fyrir mann með hans kaupsýsluhæfileika,“
sögðu þau við Jónínu. Einnig heimsóttu þau Pálmi Carter-hjónin
margsinnis til Bretlands, þar sem þau bjuggu í fallegu húsi með stór-
um garði í Huntingdon, um stundarferð í lest frá Lundúnum. Carter
hafði kynlegt áhugamál, eins og títt er um Breta, en það var sveppa-
tínsla; sótti hann jafnvel alþjóðlegar ráðstefnur um sveppatínslu, og á
veggjum húss hans voru fjölmargar myndir af sveppum; var ein
sveppategund jafnvel skírð eftir honum. Einnig var hann góður sigl-
ingamaður og átti litla skútu. Eftir að Galina Carter hætti að treysta
sér til þess að heimsækja ísland fyrir elli sakir, kom hann einn og
gisti þá hjá Pálma og Jónínu í íbúð þeirra í Miðleiti 5. Sátu þeir
Pálmi þá á tali dögum saman, og komu þá fram margar hugmyndir í
stóru og smáu, því að í viðskiptum verða menn að hlaupa við fót til
þess eins að geta staðið í stað.
V.
Pálmi Jónsson í Hagkaup fór oft til útlanda og leitaðist þá við að
sameina gagn og gaman. Flaug hann stundum í viðskiptaerindum til
New York og vildi þá helst, að kona sín Jónína færi með. Þau hjón
bjuggu þá á Taft Hotel á 50. götu, sem er ódýrt gistihús, en nálægt
helstu leikhúsum. Pálmi sinnti viðskiptum frá því snemma á morgn-
ana og fram á kvöld, en þá kom hann stundum blaðskellandi með
miða á söngleiki á Broadway, sem honum tókst jafnan að útvega sér,
þótt allt væri sagt uppselt. Hafði hann mjög gaman af slíkum söng-
leikjum. „Pálmi var mjög hrifinn af Bandaríkjunum. Honum fundust
Bandaríkjamenn opnir og ötulir,“ segir Jónína. Pálmi hafði líka
ánægju af því að fara með konu sinni til suðrænna landa í því skyni
að hvfla sig og sleikja sólskinið. Lá hann þá tímunum saman úti í
blíðunni, blaðaði í bókum og blöðum og hugsaði ráð sitt. „Pálmi
fylgdist vel með öllum nýjungum. Hann var áskrifandi að alls konar
tímaritum og fréttabréfum og lá yfir þessu og skoðaði gaumgæfilega.