Andvari - 01.01.1948, Page 11
ANDVAHI
Rögnvaldur Pétursson
7
ofríki og svik á gefnum loforðum og glöggt tákn þess, að
danska ríkisstjórnin ætlaði sér að hafa kröfur landsmanna
að engu. í atvinnumálum gekk i svipuðu þófi. Fullt verzl-
unarfrelsi fékkst loks 1854. Landbúnaðurinn stóð í stað og
sjávarútvegurinn raunar líka. í sveitunum gerðist þröngt set-
inn bekkurinn í mörgum stöðum, lítið undanfæri fyrir unga
fólkið, sem bú þurfti að stofna. Hér var illt í efni. Ekki svo
að skilja, að menn hefði hér ekki löngum búið við jafnþröng
kjör. En nú var sá munurinn á, að menn vildu ekki lengur
sætta sig við kyrrstöðu. Þeir þráðu breytingu, frelsi, framför,
framsókn, gerðust þreyttir af að sitja í sífelldu andófi og bíða
eftir lagi, sem aldrei kom svo að til leiðar sæi. Var þá að
undra, þótt ýmsum yrði litið til Vesturheims, lands frelsis
og framfara, og minntist dæmis forfeðranna, sem heldur vildu
láta óðul sín en búa við áþján? Við þurfum ekki annað en
i'enna augum yfir fyrsta stóra útflytjendahópinn 1872—73 til
að ganga úr skugga um það, að hvorki forustumennirnir né
þorri þeirra, sem þeim fylgdu, voru neinir uppgjafarmenn.
Þetta voru menn, sem gerðu uppreisn gegn þeim örlögum, er
þeir þóttust sjá búin sér og ættjörð sinni. Nú skyldi ekki biða
lengur og morra aðgerðalaust. Og bak við hinar fyrstu vestur-
ferðir liggur býsna glögg sú hugsjón að halda saman og skapa
nýtt ísland í Vesturheimi, þar sem engin stjórnmálakúgun og
ekkert framandi fjárveldi gat króað menn inni og bundið hend-
ur þeirra. Draumurinn um Nýja ísland og Íslendingaríki i
Alaska er glöggt vitni um það, hvernig fyrstu íslenzku land-
nemunum var innanbrjósts, miklum hluta þeirra a. m. k. Upp-
flosnaður hungurlýður hugsar fyrst og fremst um kjötkatl-
ana; sigraða menn dreymir ekki um að leggja ný lönd undir
sig. Þetta var hinn eilífi draumur víkinga og pílagríma, sami
draumurinn, sem i öndverðu hóf lýðríki á íslandi. Draumur-
inn um nýtt ísland í Vesturheimi náði ekki að rætast. En ís-
lenzki kynstofninn átti samt erindi til nýja heimsins. Vér mun-
nm síðar sjá, hvert það erindi var.
Landnámssaga íslendinga i Vesturheimi hermir lengra en
L'á tildrögum Vesturheimsferðanna og frnmbýlingsárunum.