Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1948, Síða 11

Andvari - 01.01.1948, Síða 11
ANDVAHI Rögnvaldur Pétursson 7 ofríki og svik á gefnum loforðum og glöggt tákn þess, að danska ríkisstjórnin ætlaði sér að hafa kröfur landsmanna að engu. í atvinnumálum gekk i svipuðu þófi. Fullt verzl- unarfrelsi fékkst loks 1854. Landbúnaðurinn stóð í stað og sjávarútvegurinn raunar líka. í sveitunum gerðist þröngt set- inn bekkurinn í mörgum stöðum, lítið undanfæri fyrir unga fólkið, sem bú þurfti að stofna. Hér var illt í efni. Ekki svo að skilja, að menn hefði hér ekki löngum búið við jafnþröng kjör. En nú var sá munurinn á, að menn vildu ekki lengur sætta sig við kyrrstöðu. Þeir þráðu breytingu, frelsi, framför, framsókn, gerðust þreyttir af að sitja í sífelldu andófi og bíða eftir lagi, sem aldrei kom svo að til leiðar sæi. Var þá að undra, þótt ýmsum yrði litið til Vesturheims, lands frelsis og framfara, og minntist dæmis forfeðranna, sem heldur vildu láta óðul sín en búa við áþján? Við þurfum ekki annað en i'enna augum yfir fyrsta stóra útflytjendahópinn 1872—73 til að ganga úr skugga um það, að hvorki forustumennirnir né þorri þeirra, sem þeim fylgdu, voru neinir uppgjafarmenn. Þetta voru menn, sem gerðu uppreisn gegn þeim örlögum, er þeir þóttust sjá búin sér og ættjörð sinni. Nú skyldi ekki biða lengur og morra aðgerðalaust. Og bak við hinar fyrstu vestur- ferðir liggur býsna glögg sú hugsjón að halda saman og skapa nýtt ísland í Vesturheimi, þar sem engin stjórnmálakúgun og ekkert framandi fjárveldi gat króað menn inni og bundið hend- ur þeirra. Draumurinn um Nýja ísland og Íslendingaríki i Alaska er glöggt vitni um það, hvernig fyrstu íslenzku land- nemunum var innanbrjósts, miklum hluta þeirra a. m. k. Upp- flosnaður hungurlýður hugsar fyrst og fremst um kjötkatl- ana; sigraða menn dreymir ekki um að leggja ný lönd undir sig. Þetta var hinn eilífi draumur víkinga og pílagríma, sami draumurinn, sem i öndverðu hóf lýðríki á íslandi. Draumur- inn um nýtt ísland í Vesturheimi náði ekki að rætast. En ís- lenzki kynstofninn átti samt erindi til nýja heimsins. Vér mun- nm síðar sjá, hvert það erindi var. Landnámssaga íslendinga i Vesturheimi hermir lengra en L'á tildrögum Vesturheimsferðanna og frnmbýlingsárunum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.