Andvari - 01.01.1948, Síða 19
ANDVAIU
Rögnvaldur Pétursson
1&
Urðu fleiri söfnuðir til þess að fara að dæmi Tjaldbúðarsafn-
aðarins, og varð af öllu þessu hin mesta orrahríð víða um
bvggðir íslendinga. Söfnuðir þeir, sem gengu úr kirkjufé-
laginu, fengu sumir presta heiman af íslandi. Höfðu þeir
nokkra samvinnu sín á meðal, en stofnuðu þó ekki reglulegt
félag með sér að sinni. En nokkuð snennna mun hafa orðið
umtal um það meðal manna, sem stóðu að hinni frjálslyndu
stefnu, hæði meðal únitara og fylgismanna síra Friðriks
Bergmanns, að vel færi á því, að flokkar þessir gengi til sam-
starfs, en slikt myndi styrkja mjög frjálshuga kirkjustarf-
semi meðal íslendinga vestra. Síra Rögnvaldur var þessu fylgj-
andi, og af hálfu hinna ýmsir áhrifamenn, þótt þar gætti að
vísu nokkurrar tregðu, er olli því, að málið dróst á langinn. Átti
sira Jakob Kristinsson, er urn hríð var þjónandi prestur hinna
frjálslyndu safnaða í Saskatchevvan, einna mestan þátt í því, að
hér dró til samvinnu, og var þá svo ráð fyrir gert, að fengnir
yrði prestar heiman af Islandi til þess að starfa fyrir hið
nýja kirkjufélag. Upphaf þess sambands var það, að meiri
hluti hins gamla safnaðar síra Friðriks Bergmanns í Winni-
peg, Tjaldbúðarsafnaðarins, sameinaðist hinum únitariska
söfnuði síra Rögnvalds. Árið 1921 fór sira Rögnvaldur til ís-
lands og réð þá síra Ragnar E. Kvaran til þess að taka við
prestsþjónustu við hinn nýja Sambandssöfnuð. Kom hann
vestur í byrjun árs 1922. Um líkt leyti réðust þeir síra Friðrik
A. Friðriksson og síra Eyjólfur .1. Melan í þjónustu Sain-
bandssafnaðanna. Árið 1923 var svo stofnað liið sameinaða
hirkjufélag íslendinga í Norður-Ameríku. Gengu allir únitara-
söfnuðirnir í þetta kirkjufélag og nokkrir hinna, er áður voru
gengnir úr gamla evangeliska lúterska líirkjufélaginu; nokkrir
biðu þó álengdar um sinn, en þágu prestsþjónustu af prest-
mn Sameinaða ltirkjufélagsins. Fáeinir hurfu aftur inn i sitt
gamla kirkjufélag.
Með stofnun hins sameinaða kirkjufélags var til lykta leidd
su þróun i kirkjumálum íslendinga vestra, er síra Rögnvaldur
hafði að starfað um tvo áratugi. Koinið var á víðtækri sam-
vinnu meðal frjálslyndra íslendinga, er áður voru meira eða
2