Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1948, Side 39

Andvari - 01.01.1948, Side 39
andvabi Högnvaldur Pétursson 35 þar sem andstæðar skoðanir og hagsmunir rekast á, lijaðnaði með árunum. Munu og fáir íslendingar vestra hafa notið óskor- aðri virðingar en hann, áður lyki. Sumarið 1937 dvaldist síra Rögnvaldur síðast á íslandi, ásaint konu sinni. Vann hann þá að því að ganga frá prentun síðasta bindis af Andvökum Stephans G. Steplianssonar og undir- búningi að útgáfu rita hans í óhundnu máli. Þetta sumar varð hann sextugur. Heilsa hans var þá heldur tekin að bila, en þó væntu vinir hans, að enn væri góð stund til stel'nu. Nóg voru verkefnin og áhugamálin mörg, og andlegt þrek og fjör með öllu óbilað. En þetta fór á aðra leið. Hann andaðist eftir nokkra vanheilsu að heimili sínu í Winnipeg, 30. jan. 1940. Þar hné til moldar einn mikilhæfasti íslendingur sinnar samtíðar, niaður, sem í öllu ævistarfi sínu hafði horið fyrir brjósti heill °g lieiður þjóðar sinnar, þótt forlögin dæmdi honum að dvelj- ast lengstum i framandi landi. Æviraun hans og æviþrá, sem hér hefur af vanefnum rninnzt verið, hefur Stephan G. Stepli- ;>nsson lýst snilldarlega í kvæði til hans 1919, og skal það verða ályktarorð þessa máls; Neinn sem harn var horinn frá brjóstum sárum þínum hafði meiri mætur á móðurarfi sínum.

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.