Andvari - 01.01.1948, Qupperneq 95
ANDVARI
Verklýðsmál á Islandi árið 1771
91
ekki hálfs misseris björg og ekki nærri jafnvægi þeirra fisks
og lýsis, sem þeir talca frá sér og sínum börnum og láta í kaup-
stað, neyðast so til að kaupa og stundum lána af þeim riku í
molatali og uppsettum taxta, so allt hnígur að aumingjans ör-
byrgð, og mega oft og tíðum sitja með svangan maga.
Fátækum ofbýður að tala um sumra hvorra lireppstjóra
vesen og ráðlag; nær þeir eiga að gjöra sín embættisverk,
moka þeir saman fátækra tíundum og látast gjöra það þeirra
vegna, en fátækir, sem við þeim eiga að taka, oft og tíðum eins
eftir sem áður á bónbjörgum. Sumar tíðir eru þeir eins settir
niður hjá þeim, sem láta úti sína tíund, sem hinum, er ei láta
þær til. Þá verkfærustu setja hreppstjórar hjá sér, en hina
þyngstu ómaga hjá bændum. En hvað af sveitapeningum verð-
ur, hvort þeir koma allir til skila fátækum til nota, er meira
tvíl. Ekki vita menn, hvort hreppstjórar gjöra sínum yfir-
völdum nokkurn reilcning fyrir þá eður ei. Item eru þeir
ríkustu teknir til hreppstjóra. Af því þeir eru rikir, nægir það,
þó þeir séu mörgum fátækum heimskari.
Af öllu þessu áður upptöldu er þeirra fátæku og áður sltrif-
aðra hjartanleg bón, að háeðla Hr. Commissarii vildu álíta
þessara nauð og þrenging og unna umbótar með góðri lag-
færingu og reglulegri niðurskipan oftnefndum öreigum til góða,
einnin antaka þennan memorial í beztu meining og vorkenna,
þó ei séu þeirra nöfn undir skrifuð, sem af ótta fyrir hinum
þora það ei, heldur slútta með fóðurlandsins nafni, forbliv-
andi með blessunarríkum fyrirmælum háeðla Hr. Commissarior-
um auðmjúkir undirdanar og þénarar. Datum 16. aprilis 1771.
íslands fátæklingar.