Andvari - 01.01.1928, Page 61
Andvari
Flugferðir
59
þegar ræft er um öryggi flutningaflugtækja. í þessum
skýrslum eru öll slys talin, sem orðið hafa, bæði meðan
á stríðinu stóð og eftir það. Því verður ekki neitað, að
slys hafi komið fyrir í verzlunarflugferðum, en nálega
öll slys, sem verða á flugvélum, koma fyrir á æfingum
herflugvéla og við íþróttaflug. Stafa þau svo að segja
öll af fífldirfsku metnaðargjarnra flugmanna, fremur en
af því, að flugvélarnar séu ófullkomnar. Það er því, eins
og áður er sagt, misnotkun flugvéla, sem orsakar þann
slysafjölda, sem því miður er staðreynd, misnotkun, sem
auðvitað skaðar flugið, með því að draga úr trú almenn-
ings á það. Þessu til sönnunar má geta þess, að síðan
farþegaflug hófust í Þýzkalandi, hefir loptsamgöngumála-
ráðunevtið í Berlín (slík ráðuneyti eru nú orðin fastur
þáttur í stjórn stórveldanna) látið gera skýrslur um allt,
er lýtur að flugi, og sýna þær (t. d. frá árinu 1925),
að hlutfallstalan um slys á farþegaflugi er 0,003 af
hundraði.
Flugvélastjórum, sem hafa farþega meðferðis, má líkja
við skipstjóra farþegaskipa, sem fyrst og fremst á að
bera fyrir brjósti öryggi farþeganna og síðan að sjá um,
að skipið nái höfn heilt á húfi og á réttum tíma. Það
verður því aldrei of oft brýnt fyrir fólki að gera grein-
armun á farþegaflugi og íþróttaflugi, og því fyrr sem
það tekst að koma fólki í skilning um, að þetta sé
tvennt ólíkt, því fyrr ljúkast augu þess upp fyrir öryggi
og gagnsemi flugvéla.
Frá sjónarmiði smiða og verkfræðinga eru flugvélar
komnar að fullkomnun og standa fyllilega skipum og
járnbrautarlestum á sporði, einnig um öryggi allt. Annað
verkefni er það, sem nú liggur fyrir, en það er að gera
flugsamgöngur alveg öruggar og óbrigðular. Lausn á
þessu verkefni liggur fyrst og fremst í gerð nógu margra