Andvari - 01.01.1928, Síða 69
Andvari
Flugferðir
67
menn, til að fara með hana, og auk þess sérfróðan
mann, er athugaði öll skilyrði fyrir flugi á íslandi.
Qerðu þeir ráð fyrir, að flugvélin tæki 7—8 farþega og
væri í föstum ferðum milli Reykjavíkur og Akureyrar
og Reykjavíkur og Vestmannaeyja, þrjár ferðir á viku
hvora leið. Með öllum kostnaði, flutningi á vélinni fram
og aftur, launum flugmanna, vátryggingariðgjöldum,
undirbúningi flugvalla og rekstri vélarinnar, áætluðu þeir
að hver floginn km. mundi kosta 2,75 mörk eða hér
urn bil 0.40 mörk á hvern km., sem einn farþegi ílygi.
Með þessu verði yrði kostnaður við flug til Akureyrar
nálægt 700 mörkum eða 100 mörkum á mann, en það
samsvarar 108 ísl. krónum. Þó að gert væri ráð fyrir,
að farseðillinn yrði eitthvað dýrari fyrst um sinn, þá
væri það þó ekki frágangssök að ferðast í loptinu. Til
samanburðar eru fargjöld á 1. farrými skipa 54 krónur
og 20—30 krónur að auk í mat og þjórfé, þegar bezt
lætur. Það þarf því ekki að meta tímann hátt til þess,
að flugvélar verði í flutningum farþega samkeppnisfærar
við skipin, eins og samgöngum vorum er nú háttað, og
landleiðin kemur enn ekki til greina. Við skulum aftur
fara fimm ár fram í tímann og athuga, hvað ferð úr
Reykjavík yfir Borgarnes og landleiðina norður mundi
kosta, með núgildandi verðlagi. Frá Borgarnesi til Ak-
ureyrar eru 325 km., og yrði kostnaður við þann hluta
leiðarinnar farinn í bifreið 49 krónur á mann; leiðin frá
Reykjavík til Borgarness 8 krónur; matur og hressingar
á leiðinni um 13 krónur, eða 70 krónur samtals. Eftir
þessum reikningi yrði ódýrara að fara þessa leið, heldur
en loptleiðina, og kemur þá aftur að því að athuga,
hvers meta skal tímasparnaðinn, en höfum vér efni á
að bíða í þessi fimm ár? Þess ber líka að gæta, að ef
flugsamgöngur væru teknar upp þegar næsta sumar,