Menntamál - 01.12.1949, Page 70

Menntamál - 01.12.1949, Page 70
192 MENNTAMÁL sem kynna sér starfsemi skólanna og heimsækja þá við og við. Við umræður kom í ljós, að félög þessi þóttu gefast misjafnlega og var jafnvel mál sumra, að slík foreldra- ráð ættu það til að vilja fá stjórn skólanna um of í sínar hendur, en þá er sæti skólastjóra og kennara vitanlega vandsetið. Vitanlega höfðu kennarar margar sögur að segja um lítt heppnað samstarf við foreldra, enda skiljan- legt, þar eð margir þeirra hafa nú eftir styrjöldina allt of fjölmenna bekki sakir kennaraskorts og ónógs húsrýmis. Ungur enskur kennari hóf umræður um frjálsar íþrótt- ir í skólum. Ræddi hann allmjög ágæti þeirra, einkanlega taldi hann andleg áhrif þeirra mikil og góð og keppni milli nemenda í flestum tilfellum nauðsynlega. Hygg ég að hann hafi mælt fyrir munn margra ungra Breta. Erlendir kennarar margir, og þó einkum hinir eldri brezku kennar- anna, risu upp til andmæla. Töldu þeir ofskipulagningu leikja í brezkum skólum mikið mein og töldu þátt kenn- ara og þjálfara þegar langt um of mikinn. Einnig bentu þeir á þá staðreynd, að þegar skólagöngu lýkur, veljast oftast beztu íþróttamennirnir til nokkurs konar atvinnu- mennsku, en hinir gerast áhorfendur og veðja um methaf- ana. (Þetta virðist því miður vera allkunn staðreynd og minnist ég þess að hafa lesið hið sama í einni af bókum skátaforingjans Baden Powels.) Rætt var um byrjendakennslu í esperanto og í sambandi við það höfð sýnikennsla, er frönsk kennslukona annaðist. Var áherzla lögð á fjölbreytni í kennslunni og það að æfa málið til sem fjölbreytilegastrar notkunar, þ. e. að tala, lesa og skrifa. Einkum var lögð mikil áherzla á talmálið, enda sá þáttur oft vanræktur í kennslu framandi mála. Þótti mér þetta hið fróðlegasta, þar eð ég hafði aðeins kynnzt fábreytilegum aðferðum í kennslu mála áður. Að síðustu vil ég svo drepa á umræðuefnið: Bréfavið- slcipti skólanna. Efni þetta var mikið rætt á fundi kenn- ara, sem haldinn var í sambandi við þing esperantomælandi

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.