Menntamál - 01.12.1954, Blaðsíða 15
MENNTAMÁL
49
GUÐJÓN JÓNSSON:
Hlutverk skólanna að dómi kennara.
Um áramótin 1947— 1948*sendi fræðslumálaskrifstofan „spurningar
til kennara um kennslustarfið o. fl." Svörin skyldi senda til Brodda
Jóhannessonar, Marargötu 7, Reykjavík. Þessar spurningar fara hér
á eftir, og fylgja þeim athugasemdir Guðjóns Jónssonar kennara og
allmörg svör við nokkrum spurninganna. Þykir mér skylt að gera
hér grein fyrir jjessu starfi.
Svo er mál með vexti, að vorið 1947 komu til mín tveir ungir
kennarar, Guðjón Jónsson frá Fagurhólsmýri og Stefán Ólafur Jóns-
son frá Sandfellshaga, og skýrðu mér frá því, að þeim væri hugleikið
að kynna sér horf reyndra kennara við menntun, starfi og verk-
efnum. Leituðum við siðan til fræðslumálastjóra, og var liann boð-
inn og búinn til að leggja málinu lið. Sá skrifstofa hans um prentun
og sendingu á spurningunum, en hlutur minn að verki þessu var sá
einn að taka við svörum frá kennurum. Guðjón mun hafa borið
hitann og þungann af því að kanna svörin og skipa þeim saman.
Lesendum mun sennilega þykja hann of hæglátur við að draga
saman efni svaranna og búa það í hendur þeim, en hann mun fara
svo að af ráðnum hug. Hann birtir álit manna með skýrslu sinni,
en lætur yfirleitt orð kennaranna sjálfra konta fram, eftir því sem
unnt er. Fyrir þessar sakir er fráleitt að vænta samræmdrar niður-
stöðu af svörunum, en þau eru sízt ómerkari fyrir þær sakir. Hitt
ætla ég, að engin hliðstæð heimild sé til að fornu né nýju um reynslu
og viðhorf íslenzkra kennara. Hefur Guðjón unnið hér þarft verk
og tímafrekt, og er leitt til jress að hugsa, ef ekki reynist fært að
birta svörin í heild eða að minnsta kosti svo rækilega, að öll sjónar-
mið komi fram. Á hitt er einnig vert að minna, að spurningar og
svör af j>essu tagi hljóta ekki af sjálfu sér að vera fullgild forsenda
fyrir ályktunum um það, er gera ber í þessum málum, sem um er
spurt. Br. J.
SPURNINGAR TIL KENNARA
UM KENNSLUSTARFIÐ O. FL.
1. a) Gerðuð |)ér kennslu að aðalstarfi yðar vegna jress að þér
kysuð [)að starf öðru fremur?
4