Menntamál - 01.12.1954, Blaðsíða 28
62
MENNTAMÁT.
ari aga. Þannig verða í báðum flokkum 23+4=27. En 13
þeirra greina báða þætti, svo að þeir verða 27+27=13=
41, sem greina annan hvorn þeirra eða báða, eða allir nema
þrír þeirra kennara, sem gagnrýna bóknámið.
10: Skólinn sér fyrst og fremst þá nemendur, sem gæddir eru bók-
legri námshæfni, en vanrækir og vanmetur þá, sem eiga liæfni og
löngun til verklegs náms og félagslegra starfa. Námskröfur til barna ná
orðið engri átt og virðist ekkert Iát á því heimskulega kapphlaupi.
Allt virðist miðað við afburðanámshæfileika eða örfá prósent nem-
endanna. Enginn tími er afgangs handa nemendum og kennurum
til félagslegra starfa og til þess að sinna persónulegum hugðarefnum,
sem þó hefur mjög mikla þýðingu.
21: Öllum fjölda barna álít ég blátt áfram misboðið með allt of
miklu og síendurteknu fræðslustagli og kyrrsetum, en allt of lítið verk-
legt nám er við þeirra hæfi. í þorpa- og bæjaskólum eru oftast lítil
persónuleg kynni nemenda og kennara og |jví nær ógerningur að
rækja það, sem ég hef leyft mér að telja auk fræðslunnar aðalhlut-
verk skólanna, (auka hreinlæti og heilsuvernd, glæða fegurðarsmekk,
þegnskap og vinarþel og vera börnum, sem erfitt eiga, andlegur griða-
staður).
20: Það er of mikið kapp lagt á það, að koma vissum forða af fræðslu
inn í höfuð barnanna. Minna fengizt um hitt, að þeim verði það, sem
þau læra, að gagni. Tel ég vafalaust, að bóklegar fræðigreinar séu
of margar, einkum fyrstu árin til 12 ára. Verkleg kennsla of lítil.
11: Álít, að skólar yfirleitt leggi of einhliða áherzlu á bóklega
fræðslu, en leggi of litla rækt við hollar venjur í umgengni, liirðu-
semi og hreinlæti.
7: í barnaskólunum krefst námsskrá svo mikils, að tími gefst lítill
til almennra uppeldisáhrifa.
75: 1. Ekki nægilega sinnt hinu siðræna og félagslega uppeldi.
Félagsstarf of lítið í skólanum. 2. Skólarnir veita nemendum sinum
ekki næg skilyrði til þess að þroska sérhæfni né nóg leitað eftir henni.
Hið verklega nám er enn allt of mikið útundan, sérstaklega lijá drengj-
unum. Námið er enn of mikil ítroðsla. Nemendurnir eru um of óvirkir
viðtakendur.
50: Ég álit, að gerðar séu of miklar kröfur til skólanna í svokölluð-
um lesfögum. Ekki sé hægt að rækja a. m. k. félagslegt starf í skólun-
um öðru vísi en á kostnað þeirra að meira eða minna leyti. Orsökin
til þess liggur líka í óheppilegum lærdómsbókum Námsbókaútgáf-
unnar, ófullnægjandi en þó of langdreginni íslandssögu og of langri
landafræði og tilfinnanlegum skorti á góðum og handhægum landa-