Menntamál - 01.09.1964, Síða 18
12
MENNTAMÁL
Björn M. Ólsen var kjörinn fyrsti Eormaður Eélagsins.
Hann var þá 39 ára að aldri. Hann var kunnur vísinda-
maður og varði við Hafnarháskóla ritgerð „Um rúnir í
forníslenzkum bókmenntum“, og hlaut fyrir það doktors-
nafnbót. Hann lét fræðslumálin mjög til sín taka, bæði á
þingi og ntan þess. Hann varð prófessor í norrænu við
stofnun Háskóla íslands 1911.
Páll Melsted var 77 ára að aldri, er hann gerðist stofn-
andi kennarafélagsins. Hann var kunnur lærdómsmaður og
skólamaður. Aðalverk hans var Mannkynssaga, er lengi var
höfuðrit í þeirri grein Jiér á landi. Kona hans var Þóra,
dóttir Gríms amtmanns Jónssonar. Þóra stofnaði fyrsta
kvennaskóla á íslandi 1874. Sá skóli starfar enn.
Pálmi Pálsson var þá 32 ára. Hann var meistari í norræn-
um fræðum frá Hafnarháskóla, kenndi lengi við lærða skól-
ann og hafði einnig á liendi stjórn forngripasafnsins í mörg
ár.
Böðvar Böðvarsson var 47 ára. Hann var hálfbróðir séra
Þórarins prófasts í Görðum, kenndi lengi við barnaskólann
í Hafnarlirði, fékkst einnig við verzlun.
Geir T. Zoéga var 32 ára. Hann tók próf í málfræði og
sögu við Hafnarháskóla, stundaði síðan ævilangt kennslu
við lærða skólann, alls í 44 ár, síðustu 15 árin rektor skól-
ans. Hann vann stórvirki á sviði málvísinda og santdi þrjár
orðabækur.
Jóhannes Sigfússon var þá 36 ára. Hann var guðfræðing-
ur, en stundaði kennslu alla tíð, fyrst í Flensborgarskólan-
um, síðan menntaskólanum í Reykjavík. Hann safnaði mikl-
um drögum að skólasögu íslands og var fyrsti kennari í
uppeldisfræði á fslandi.
Þorvaldur Thoroddsen var 34 ára. Hann las náttúruvís-
indi, dýrafræði og jarðfræði við Hafnarháskóla, kenndi
fyrst við Möðruvallaskólann, síðan við lærða skólann í
Reykjavík. Hann JieJ'ur ritað manna mest og bezt um nátt-
úru íslands. Liggja eftir hann mörg stórmerk rit.