Menntamál - 01.09.1964, Page 21
MENNTAMÁL
15
áhugi var fyrir hendi um þessi mál, þar sem menn úr ýms-
um stéttum vildu styðja félagið með þátttöku sinni. Til
fróðleiks skal nefna nöfn þessara manna: Landshöfðingi
Magnús Stephensen, Þórarinn prófastur Böðvarsson í Görð-
um, báðir með ævitillagi, amtmaður E. Th. Jónassen, Þor-
leifur Jónsson, prestur á Skinnastöðum, Björn Jónsson, rit-
stjóri í Rvík, Björn Bjarnason cand. jur. í Gerðiskoti (síðar
sýslumaður), sýshunaður Sigurður Þórðarson í Arnarholti,
Guðmundur Helgason, prestur í Reykholti, Zophonías Hall-
dórsson, prestur í Viðvík, Bjarni Jónsson á Þuríðarstöðum
í Eiðahreppi, S.-Múl., Magnús Stefánsson í Dölum í Fá-
skrúðsfirði, amtmaður Júlíus Hafstein á Akureyri, læknir
Þorgrímur Johnsen á Akureyri, Sæbjörn Egilsson, bóndi á
Hrafnke 1 sstöðum, Þorleilur Jónsson, ritstjóri í Rvík, Björn
Bjarnason, búfræðingur í Rvík, Jens Pálsson, prestur á IJt-
skálum, Arnljótur Ólafsson, prestur á Bægisá, dr. Jón Þor-
kelsson frá Kaupmannahöfn, Guðjón Erlendsson í Svið-
holti á Álftanesi, og séra Sigurður Stefánsson í Vigur.
Eélagið varð nú talsvert öflugt og hafði góðum og fram-
takssömum mönnum á að skipa. Verkefni voru alls staðar
lyrir hendi. Áhugamestu mennirnir hófu umbótastörf með
félagið að bakhjarli og áhrifa þess gætti brátt á mörgum
sviðum þjóðfélagsins.
Stefán Stefánsson (síðar skólameistari) frá Möðruvöllum
hafði gengið í félagið fyrir fyrsta aðalfund. Hann var einn
al’ hvatamönnum þessarar íélagsstofnunar, en átti þess ekki
kost að sitja stofnfund. Hann gerðist nú einn aðalkraftur
félagsins og varð æ síðan einn af beztu forsvarsmönnum
alþýðufræðslunnar í landinu og neytti aðstöðu siunar, bæði
innan þings og utan, til þess að vinna að bættum menntun-
arskilyrðum þjóðarinnar. Stefáni þótti stefna félagsins ekki
nógu skýrt mótuð með fyrstu grein laganna og fékk því á
aðalfundinum samþykkta nýja grein, sent kæmi í stað hinn-
ar fyrri. Var hún svohljóðandi: „Tilgangur félagsins er að
koma sem beztu og haganlegustu skipulagi á alla kennslu