Menntamál - 01.09.1964, Page 63
MENNTAMAL
57
1960 vai' að vísu ætlað að vera meðalvegur, enda gert ráð
íyrir frávikum vegna duglegustu og seinfærustu nemend-
anna. Raunin hefur þó orðið sú, enn sem f'yrr, að kennslu-
hættir, námsbækur og próf eru hin sömu fyrir alla.
Höfuðókostur þessa fyrirkomulags er sá, að nokkur hóp-
ur nemendanna veldur ekki námskröfunni. Afleiðingin
verður sú, að þessi börn strita allan sinn skólatíma við verk-
efni, sem eru þeim ofviða. Þau yfirgefa síðan skólann án
teljandi árangurs af náminu, en þrúguð af vanmetakennd
og rúin þeim skapgerðareiginleikum og siðferðilegu verð-
mætum, sem skólanum var ætlað að móta og skapa.
Þetta þarf engan að undra, sé þess gætt, hve mismunur
á greindarþroska jafnaldra einstaklinga er mikill.1) Og þar
sem greindin er einmitt meginþáttur námsgetunnar, er aug-
Ijóst, live nauðsynlegt það er að aðhæfa námsefnið raun-
verulegri námsgetu nemendanna. Mörg þeirra barna, sem
hér um ræðir, eiga þar á ofan heimili, sem eru algerlega
ófær um að sinna uppeldisskyldu sinni. Þau hafa því mjög
brýna þörf fyrir uppeldisfræðilega meðferð í skólanum. Um
þetta eru uppeldisfræðingar á einu máli. Prófessor dr.
Matthíasi Jónassyni farast t. d. svo orð í bókinni „Erfið
bi)rn“ (bls. 159—160): „Munurinn á greindarþroska manna
I) Sem dæmi um hinn gííurlega misnnin á greindarlari jalnaldra
harna má nelna rannsókn Termans á 263 ellelu ára gömlum amerísk-
um skólabörnum. (Terman, The intelligence ol school children, l)ls.
117). Greindaraldur þessara II ára gömlu barna spannaði bilið lrá 5
árum og upp í 18 ár. Skiptingin var þessi: Greindaraldur 10—12 ár
13!) börn. Greindaraldur 13—18 ár 78 börn. Greindaraldur 5—9 ár
46 börn.
í bókinni „Mentalhygien och pedagogik" (Natur och Kultur 1955)
segir svo á bls. 129: „Ameríski sáll'ræðingurinn F. Freeman komst að
raun um það við greindarmælingar á hópi 12 ára barna í Bandaríkj-
unurn, að 10% barnanna var tveim árum eða meira á undan í greind-
araldri og 10% var tveim áruni á eftir. Með öðrum orðum: mismun-
urinn á greindaraldri 20% barnanna var fjögur ár eða meira. Svipaðar
niðurstöður liafa fengizt við rannsóknir á Norðurlöndum."