Menntamál - 01.09.1964, Síða 110
104
MENNTAMAL
l>;iu atriði, stm samningar tókust ekki um, gengu lil Kjaradóms.
Kjararáð ii.S.R.B. gerði þær kröfur íyrir Kjaradómi, að byrjunarlaun
í 1. flokki skyldu vera kr. 4.800,00 á mánuði, en kr. 26.550,00 í 28.
fiokki.
Byrjunarlaun kcnnara í 15. flokki skyldu vera kr. 10.130,00 á mán-
uði, hámarkslaun eftir 15 ár kr. 13.240,00.
Samninganefnd ríkisstjórnarinnar gerði þær kröfur, að í 1. flokki
skyldu byrjunarlaun vera kr. 3.750,00 á mánuði, en í 28. flokki kr.
15.500,00. '
Kennurum (15. 11.) voru þar ætlaðar kr. 7.500,00 í byrjunarlaun á
mánuði, en hámarkslaun kr. 8.500,00 eftir 10 ár.
Kjaradómur felldi úrskurð í málinu 3. júlí 1963. Samkvæmt honum
skulu byrjunarlaun í 1. flokki vcra kr. 4.800,00 á mánuði, en í 28.
flokki kr. 19.910,00.
Byrjunarlaun kennara (15. fl.) kr. 8.360,00 á mánuði og hámarks-
laun cftir 15 ár kr. 10.170,00.
Um árangur Jjessarar kjarabaráttu kennara skal ekki fjölyrt hér.
I>ar verður hver og einn að leggja dóm á eftir eigin mati. Enginn
mun þó neita Jjví, að nokkuð hafi áunnizt, jjótt töluvert skorti enn
á, að kennarar hafi fengið sanngjörnum kröfum fullnægt. En hafa
verður í huga, þegar þetta er metið, að allt verðlag hefur hækkað mjög
mikið, síðan laun voru ákveðin, og starfsmönnum ríkisins hefur tví-
vegis verið neitað um launabætur, scm Jieir töldu sig eiga fullan rétt
á, borið saman við aðrar launastéttir, í lyrra skiptið um 5%, en í
hið síðara um 15%.
Vert er að benda á Jrað í þessu sambandi, að J>að létti mjög störf
þeirra, sem að þessu unnu, hversu vel kennarar brugðust við, ef til
Jreirra var lcitað. Hitt var þó ekki minni styrkur að finna, að stéttin
stóð óskipt að baki þeim í kjarabaráttunni.
Gangur þessara mála skal ckki rakinn hér nánar að sinni, þar sem
þau eru að mestu um garð gengin í bili, en ný viðhorf og ný verkefni
blasa við á næsta leiti og bíða úrlausna.
Greiðsla jyrir heimavinnu o. jl.
Kjaradómur felldi ekki úrskurð um grciðslu fyrir ýmis aukastörf,
sem margir starfshópar liafa innt af hendi og fengið greidd. Sam-
kvæmt kjarasamningslögunum er svo til ætlazt, að félögin semji sjálf
um slíkar greiðslur.
Heimavinna kennara vegna úrvinnslu verkefna í móðurmáli, reikn-
ingi og dönsku fellur m. a. undir þess háttar aukastörf.
Eins og kunnugt er, hafa kennarar ekki fengið neitt greitt fyrir
Jjessa vinnu í vetur.