Menntamál - 01.09.1964, Page 124
118
MENNTAMAL
4. Fundurinn beinir þeim tilmælum til menntamálaráðherra, að
hann hlutist til um, að varið verði a. m. k. 100 þúsund krónum
til þess að styrkja utanfarir 10 skólastjóra árlega, svo að þeir geti
kynnt sér nýjungar í kennslu- og skólamálum, sótt námskeið og
ráðstefnur skólamála.
5. Fundurinn telur, að núgildandi liig unt skólabókasöfn séu alls
ófullnægjandi, einkum fyrir smærri skóla landsins. Væntir funtl-
urinn þess, að menntamálaráðherra beiti sér fyrir því, að hækkuð
verði framlög ríkis, bæja og hreppsfélaga til skólabókasafna, og
telur, að stofnframlag til skólabókasafns megi eigi vera minna
en 20 jn'is. krónur og síðan 50 kr. til viðhalds þeirra á nemanda
frá ríki og bæjar- og sveitarfélögum.
6. Fundurinn hefur áhyggjur af því, hve fátt er gefið út af íslenzk-
um barnabókum og beinir þeim tilmælum til menntamálaráðherra,
að hann hlutist til um, að ríflegum fjárframlögum verði varið
til þess að verðlauna handrit að íslenzkum barnabókum fyrir
öll aldursskeið í jreim tilgangi að örva útgáfu íslenzkra barna-
bókmennta. Enn fremur skorar fundurinn á bókafélög og bóka-
útgefendur að taka þetta mál sérstaklega til athugunar.
7. Fundurinn skoraði á dagskrárstjórn Ríkisútvarpsins að taka upp
sérstakan skólamálaþátt í dagskrá útvarpsins, og hlutast til um,
að erindi Þorsteins Sigurðssonar kennara um lestrarkennslu og
Ólafs Hauks Árnasonar skólastjóra, Aga er þörf, verði endurflutt í
útvarpinu.
8. Fundurinn skorar á biskup landsins og prestastefnu að vinna
að því, að teknar verði upp haustfermingar eingöngu, a. m. k.
í Reykjavík og kaupstöðum, og verði þá öllum fermingarundir-
Irúningi lokið, áður en skólar hefjast á haustin.
Enn fremur telur fundurinn, að jrví aðeins verði tilgangi með
fermingarundirbúningi náð, að eigi séu fleiri börn tekin til spurn-
inga í senn en sem svarar einni bekkjardeild, J). e. 20—25 börn.
0. Fundurinn skorar á fræðslumálastjórn að vinna að j>ví, að sett
verði ákvæði í lög um hámarksstærð skólabygginga. Telur fund-
urinn að hamla beri á móti Jjví, að upp rísi á íslandi skólabákn,
sem meir líkjast verksmiðjum en uppeldisstofnunum. Telur fund-
urinn, að ekki eigi að leyfa byggingu stærri skóla en lyrir 500
nemendur.
10. Fundurinn samþykkti að beina þeim tilmælum tii fræðslumála-
stjórnar, að falleinkunn verði niður felld á barnaprófi.
11. Fundurinn skorar á foreldra og löggæzlumenn um land allt, að
herða sem mest eftirlit með útivist barna og unglinga á síðkvöld-
um, og vinna ötullega að jrví, að lög og reglugerðarákvæði jrar um