Menntamál - 01.09.1964, Qupperneq 125
menntamál
119
vcrði eigi brotin. Telur fundurinn, að orsakir afbrota, agaleysis
og raargra annarra meina þjóðfélagsins liggi í því, hve mál þessi
eru tekin lausum tökum hér á landi.
12. Fundurinn telur ámælisvert, hve margir skólar á landinu eru
fátæklega búnir að áhöldum og tækjum. Sérstaklega bendir fund-
urinn á aðstöðumun til náms og kennslu, sem þetta skapar nem-
endum og kennurum dreifbýlisins, ofan á allt of stuttan náms-
tíma árlega. Skorar fundurinn á fræðslumálastjóra að láta t. d.
námsstjóra athuga nú þegar ástand skólanna í þessum efnum
og gera viðunandi ráðstafanir til úrbóta. Fundurinn skorar á
menntamálaráðherra að boða alla skólanefndarformenn landsins
til funda, t. d. á Akureyri og í Reykjavík, til þess að ræða þann
þátt, er að sveitarfélögum snýr í sambandi við rekstur skóla,
og verði þeim þá sýndir skólar búnir nauðsynlegum tækjurn og
áliöldum, svo að þeim gefist tækifæri til jtess að kynna sér hvaða
kröfur séu almennt gerðar í jressum efnum.
13- Fundurinn telur, að óeðlilegt sé og næsta vafasamt að miða laun
skólastjóra við tölu fastra kennara, og lelur stjórninni að vinna
að breytingu í Jrá átt, að laun skólastjóra verði miðuð við tölu
nemenda skólans.
14. Fundurinn telur, að réttur skóla til keunara skuli miðaður við
kennslustundafjölda vikunnar, en ekki tölu nemenda. Jafnframt
beri að gefa út reglur um það, hvenær skipta sktdi bekkjardeild
(|j. e. um hámarkstölu nemenda).
15- Fundurinn áréttar fyrri kröfur urn, að skólastjóri sé talinn með
í tölu kennara, þegar skólastjórum er skipað niður í launaflokka.
Enn lremur undirstrikar fundurinn fyrri kröfur um, að reglum
um kennsluskyldu skólastjóra verði breytt á þann veg, að lækkuð
verði til muna kennsluskylda skólastjóra, einkum í smærri skól-
um landsins.
Fundurinn áréttar og endurtekur fyrri tillögur félagsins um:
16- Að námsskrá skyldunámsins og gagnfræðastigsins verði tekin til
gaumgæfilegrar athugunar hið allra fyrsta.
Að þar til sú endurskoðun hefur farið fram, verði námskröfur
og próf samræmd þannig um land allt, að þeir, er unglingaprófi
hafa lokið með tilskilinni lágmarkseinkunn, ákveðinni af fræðslu-
málastjórn, geti gengið hindrunarlaust upp í 3. bekk gagnfræða-
skóla og héraðsskóla.
'7. Að landsbyggðinni verði sem fyrst séð lyrir sálfræðilegri þjónustu.
Meðan sú skipan kemst ckki á, verði sálfræðingar látnir ferðast
milli skóla landsins til athugana og ráðlegginga.
18. Að unnið sé að Jrví, að upp verði komið hið bráðasta eigi færri