Menntamál - 01.09.1964, Page 131
menntamál
125
staðsetur stofnunina formlega og í reynd samhliða öðrum
akademiskum menntastofnunum og er viðurkenning á gildi
skólans sem miðstöð framhaldsmenntunar kennara.
A vegum kennaraháskólans eru haldin námskeið víðs veg-
ar um landið og eru þau mikilvægur þáttur í framhalds-
menntun danskra kennara. Það er mikið áhugamál kennar-
anna, að sett verði á laggirnar útibú frá kennaraháskólan-
um í hinum ýmsu landshlutum. Þessi ósk á ekki einvörð-
ungu rætur sínar að rekja til mikillar þarfar á framhalds-
menntun, heldur er hér einnig höfð hliðsjón af gæðum
menntunarinnar, sem veita á. Þá þykir það réttlætismál,
að allir kennarar hafi sömu möguleika til framhaldsmennt-
unar án tillits til búsetu.
Það er enn einn liðurinn í viðleitninni til þess að að-
stoða kennara við endurbætur á uppeldissviðinu, að nefnd
hefur verið sett niður til þess að endurskipuleggja skóla-
miðstöðvarnar svokölluðu (skolecentralerne). f Danmörku
er mikil nauðsyn leiðbeininga í sambandi við val skóla-
bóka. Enn fremur er þörf á að kynna kennslugögn og miðla
uppeldisfræðilegTÍ reynslu. Skortur á skipulagningu, slæm-
ur fjárhagsgrundvöllur og þar af leiðandi ónóg húsakynni
og uppeldisfræðileg þjónusta liefur gert margar skólamið-
stöðvar lítt starfhæfar. Á þessari þjónustu hefur nú vaknað
mikill áhugi, og verður því reynt að skapa þessum stofn-
unum fjárhagslegt öryggi, auka og bæta húsnæði þeirra og
kennslugagnasafn og fjölga starfsliði, svo að þær geti í fram-
tíðinni orðið þess umkomnar að veita þá leiðsögn og vekja
þann starfsáhuga, sem þörf er á.
Hin ýmsu stig í framkvæmd nýju skólalöggjafarinnar eru
nú afstaðin. Nýju prófin fyrir 9. og 10. bekk hafa verið
haldin og s.l. vor fóru fram gagnfræðapróf í fyrsta skipti
eftir hinum nýju fyrirmælum. Breytingarnar hafa orðið til
þess að setja allmikinn tilraunasvip á skólastarfið. Hér er
um að ræða nýjar námsgreinar, nýjar prófaðferðir og nýtt
einkunnakerfi.