Menntamál - 01.09.1964, Side 147
menntamál
141
ara skóla virðast hafa skilið þessa nauðsynlegu ráðstöfun,
því að engar óánægjuraddir hafa frá þeim heyrzt.
Árgjaldið er nú tvískipt. B.S.R.B. innheimtir sinn hluta,
3%c af árslaunum, í maímánuði, en L.S.F.K. innheimtir
sinn hluta, 4%c af árslaunum, í júlímánuði. Innifalið í ár-
gjaldi til L.S.F.K. er árgjald fyrir tímaritið Menntamál, sem
senda á öllum meðlimum L.S.F.K. Ef vanskil verða á því,
eru félagsmenn beðnir að láta vita unr það, og verður þá
úr því bætt.
Svo nrikil gjörbylting hefur orðið í starfsenri þessara sanr-
banda við það að verða samningsaðilar um laun meðlima
sinna, að ógjörlegt hefur orðið annað en ráða starfslið og
halda opnum skrifstofum.
L.S.F.K. er samningsaðili varðandi öll aukastörf kennara
og hefur nú þegar sanrið við samninganefnd ríkisstjórnar-
innar um greiðslur fyrir heimavinnu þeirra kennara, sem
kenna íslenzku, erlend mál, reikning og eðlisfræði. Samn-
ingur sá er svohljóðandi:
SAMNINGUR
itm greiðslu fyrir heimavinnu við leiðréttingu skriflegra verkefna
i framhaldsskólum, öðrum en menntaskólum og Kennaraskóla Islands.
Fjármálaráðherra f. h. ríkissjóðs og Landssambands framhaldsskóla-
kennara gera með sér svofelldan samning, skv. (i. gr. 1. nr. 55 1962,
"m kjarasamninga opinberra starfsmanna:
Greiða skal hverjum kennara fyrir heimavinnu við leiðréttingu
skriflegra verkefna, sem verða umfram 80 á mánuði að jafnaði, eins
°g hér segir:
a) Kr. 3.60 fyrir hvern stíl í íslenzku.
b) Kr. 2.40 fyrir hvern stíl í erlendum málum.
c) Kr. 1.80 lyrir úrlausn hvers nemanda í eðlisfræði og reikningi.
Eigi skal greiða fyrir fleiri en eitt verkelni vikulega frá hverjum
nemanda í sömu námsgrein.
Skólastjórar hafi eftirlit með fjölda skriflegra verkefna, sem kenn-
"tar leiðrétta heima og þóknun á að koma íyrir samkvæmt framan-
sögðu.