Æskan

Volume

Æskan - 01.11.1975, Page 13

Æskan - 01.11.1975, Page 13
U-ha, u-ha, en það jólaveður. Snjórinn féll í stórum flygsum og stormurinn blés svo að kaffikann- an rauk niður af borðinu hjá bú- álfafjölskyldunni, sem bjó uppi und- ir þaki í gamla prestssetrinu. Það var að sjálfsögðu allt í lagi að kaffi- kannan dytti niður á gólf, því að það var ekkert kaffi f henni, þar sem búálfar drekka aldrei kaffi. Nei hitt var öllu verra að kaffikannan var hádegisverðarbjalla fjölskyld- unnar. Þegar búálfamamma var bú- in að búa til matinn, glamraði hún með lokinu og þá komu allir bú- álfarnir hlaupandi eins hratt og þeir gátu, hver með sína skeið í hend- inni. Þetta gerðist einnig núna, í gegn- um glugga, dyr og rifur í þakinu þyrptust þeir inn. • Búálfamamma flýtti sér að benda þeim á mistökin og dálítið angraðir á svipinn hurfu þeir aftur til vinnu sinnar. Sjáið nú til, búálfarnir hafa þann sið, að allir gömlu búálfarnir hitt- ast á aðfangadag á geysistórri hæð mælti konan og þrýsti honum að sér. „Hefurðu verið hér að gráta? Komdu nú niður og sjáðu nýju fötin þín, og ekki skaltu þurfa að hrekjast héðan meðan ég lifi, því heiti ég, og það sama skal ganga yfir þig og hin börnin mín. — En nú skul- um við koma.“ En um kvöldið, þegar verið var að lesa jólaguðspjallið, þá var Dóri svo fjarskalega glaður. Hann var viss um, að hann hafði séð jóla- engilinn, eins og hjarðmennirnir á Betlehemsvöllum forðum. Og hann var líka sannfærður um, að Guð var óumræðilega góður. í skógarjaðrinum. Og þennan dag sagði búálfamamma við búálfa- pabba og Las, sem er lítill, sniðug- ur búálfur, hræðilega latur og vill helst alltaf vera að segja frá hin- um gömlu góðu dögum í stað þess að vinna. — Heyrið þið mig nú, sagði búálfamamma, — hafið þið gleymt að þið ætlið á fund í dag? Nú skal ég útbúa nestispokana ykk- ar, svo að þið getið farið að tygja ykkur af stað. Las og búálfapabbi flýttu sér eins og þeir gátu, því að þetta er mjög mikilvægur fundur. Og hvað hafa þeir nú fyrir stafni á þessum fundi? Fyrst syngja þeir einn jólasálm — og þeir flýta sér ákaflega mikið af því að því loknu opna þeir nestis- pokana. í þeim eru stór og mikill nestispakki og ein flaska af jólaöli. Og þeir dunda lengi yfir matnum því hann er venjulega mjög góður. Þegar þeir hafa lokið öllum matn- um hefst hinn mikilvægi fundur. Það er að segja þeir hefja umræður um hvar eigi að halda jólin hátíðleg í ár, og allir gömlu álfarnir verða þegar í stað ásáttir um að í ár skuli þeir halda iólin á prestsetrinu, eins og þeir hafa alltaf gert. Já, svo er fundurinn búinn og allir búálfarnir fara heim aftur og segja hver við sína búálfamömmu, að nestispakk- inn hafi verið verulega góður. Þegar Las og búálfapabbi komu aftur heim, var búálfamamma ein- mitt að Ijúka við að skreyta íbúð- ina og allt var svo Ijómandi fallegt. Allt gólfið var þakið grenigreinum og rauð silkibönd hér og þar og jólabjalla niður úr miðju loftinu. Á borðinu stóð kaffikannan spegil- gljáandi og rautt silkiband var bundið um hankann. Jólatréð, sem þau ætluðu að dansa í kringum stóð á miðju gólfi ofan í gamalli fötu. — Jú, allt var svo Ijómandi fallegt. Litlu búálfabörnin gátu ekki skilið af hverju þau áttu ekki eins og veniulega að búa til iólaskraut. En búálfamamma sagði þeim, að nú ætlaði hún siálf að skreyta. Nú, litlu búálfarnir höfðu heldur ekki mikinn tíma, því að þeir áttu eftir að búa til allar iólagiafirnar. Þeir fengu að vera aleinir í litlu herbergi við hlið- ina á stofunni og þar máttu þeir athafna sig eins og þeir vildu. Þeir skáru út skeiðar og fléttuðu mottur. Stærsti búálfasnáðinn byrj- aði að búa til teppabankara, en hætti við það, þegar hann mundi eftir að einu sinni, þegar hann hafði dregið mús á halanum, hafði hann fengið högg á bossann með gamla bankaranum og það hafði verið sárt, svo hann skar út tréskó í staðinn. Á aðfangadagsmorgun komu allir litlu búálfarnir hlaupandi og sögðu frá því að þeir hefðu lokið við að ■ 11
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.