Æskan - 01.11.1975, Page 44
Svo skuluð þið stofna til sam-
keppni um, hver getur kastað flest-
um spilum niður í hatt, sem er lát-
inn standa í h.u.b. tveggja metra
fjarlægð.
Ef þú tekur utan um spilið eins
og sýnt er á mynd A og kastar því
síðan eins og sýnt er á mynd B, að-
eins með afli fingranna þá muntu
áreiðanlega bera sigur úr býtum
og hljóta lof fyrir hæfni.
Kunnið þið reikningsspilið? Til
þess að spila það þarf ekki annað
en tening og bikar til að kasta
honum úr. Hver þátttakandi fær f
hvert skipti, sem hann á áð kasta,
fjögur köst: eitt frumkast, eitt plús-
kast, eitt mínuskast og eitt marg-
földunarkast. Ef teningurinn kem-
ur t.d. upp f þessari röð í köstun-
um: 2-5-3-6, yrði útkoman þessi:
2+5 eru 7, -^3 eru 4, margfaldað
með 6, eru 24.
skaplega eftirsóknarvert, að vera í för með hundinum og eiganda
hans. Barrie sagði börnunum sögur af álfum, sjóræningjum og
Indíánum.
Afleiðingin af dvöl hans í Surrey nálægt Svartvatnseyju eitt sum-
arið varð til þess að til varð bók, sem hafði að geyma ævintýrin,
sem hann hafði sagt strákunum um sumarið. Aðeins voru gerð tvö
eintök af bókinni. Öðru segist Barrie hafa týnt einhvers staðar í
járnbrautarlest, en hitt eintakið er í Bandaríkjunum og er nú I eigu
Yale háskólans.
Sögurnar í þessari bók, og ævintýrin, sem hann hafði sagt strák-
unum, er þeir gengu um Kensington Gardens urðu svo meginuppi-
staðan í Pétri Pan. — Ég blandaði ykkur fimm saman, sagði hann,
og útkoman varð Pétur Pan. Nana, hundurinn, sem kemur fram í
Pétri Pan minnir á margan hátt á Porthos, St. Bernharðshund Barries.
Þegar leikritið hefst sjáum við inn í barnaherbergið hjá Darling
h^ónunum, sem búa í London, nánar tiltekið í Bloomsbury, skammt
frá British Museum. Börn hjónanna, Wendy, Mikael og John sofa í
rúmum sínum. Þá kemur Pétur Pan fljúgandi inn um gluggann. Hann
er að leita að skugganum, sem hann er búinn að týna. Þetta augna-
blik finnst þeim börnum, sem Ieikinn sjá einna skemmtilegast. Pétur
kennir nú þessum þrem ungu vinum sínum að fljúga, og svo svífa
þau saman til Aldrei-Aldrei landsins og upplifa þar að sjálfsögðu
hin furðulegustu ævintýri, þar sem meðal annars Krókur skipstjóri,
sem flestir þekkja, kemur við sögu. Eftir að hafa sloppið naumlega
úr fjölmörgum hættum snúa þau til Bloomsbury, — og svo skemmti-
lega vill til, að í Bloomsbury er einmitt barnaspítalinn, sem sir Barrie
gaf útgáfuréttinn að Pétri Pan árið 1929. Þessi spítali er við Great
Ormond Street og er víðfrægur. Þar á spítalanum heitir sérstök álma
eftir Barrie, og ein af deildunum er kennd við Pétur Pan, og fyrir
nokkru var gerð myndastytta of Pétri Pan og hún sett upp á lóð
spítalans.
í Kensington Gardens, þar sem segja má, að sagan hafi fæðst, hefur
verið myndastytta af Pétri Pan í um það bil hálfa öld. Þá styttu
þekkja hér um bil allir Lundúnabúar og öllum þykir vænt um hana.
Á fótstalli hennar eru myndir af óteljandi álfum og dýrum sem börn
hafa um áraraðir glaðst við að skoða og snerta.
Töfrar Péturs Pan munu um ókomin ár halda áfram að fanga hugi
barna og unglinga og raunar fullorðinna líka, þar sem segja má að
leikritið sé ekki síður ætlað þeim, sem njóta þess að sjá leikrit með
börnum sínum, sem þeir sjálfir sáu ef til vill með foreldrum sínum.
Ef þannig vill til, að útkoman úr
köstunum fjórum verður mínus,
kemst maður í skuld og verður að
greiða hana í seinni umferð. Haldið
er áfram þar til einhver hefur kom-
ist upp í hundrað og með því unn-
ið spilið.