Æskan

Årgang

Æskan - 01.11.1975, Side 76

Æskan - 01.11.1975, Side 76
H. G. Wells: Tímavélin 11. KAFLI POSTULÍNSHÖLLIN GRÆNA Um nónbil náðum við til postulínshallarinnar grænu, og var hún mannlaus og að mestu ( rústum. Glugga- rúðurnar voru brotnar, og víða var græni liturinn fallinn af málmumgjörðum glugganna og málmurinn étinn sundur af áhrifum vatns og lofts. Höllin stóð á grasi grónum sandhól og var þaðan fagurt um að litast. Efniviðurinn í þessari miklu byggingu reyndist í raun og veru hreint postulín, og voru veggirnir þakt- ir áletrunum, sem ég gat ekki þýtt. Ég var svo fávís að halda, að Vína mundi geta þýtt þetta letur fyrir mig, en komst brátt að raun um, að hún hafði ekki einu sinni hugmynd um í hverju listin að lesa væri fólgin. Ég held mér hafi alltaf fundist Vína vera lík- ari mannlegri veru en hún var í raun og veru vegna þess, að ástúð hennar var svo mannleg. Þegar komið var innfyrir hinar voldugu vængja- hurðir hallarinnar, sem voru opnar og brotnar, gat að líta langan sal með mörgum gluggum. Mér datt strax í hug gripasafn. Á tígulsteinsgólfinu var þykkt lag af ryki: meðfram veggjunum stóðu alls konar kynlegir hlutir í löngum röðum, og var sama þykka ryklagið á þeim öllum. Tók ég þá eftir ferlíki einu í miðjum salnum, sem við nánari athugun reyndist vera geysistór beinagrind af einhverri frumaldar- skepnu. Þóttist ég kenna af lögun fótanna, að dýr þetta mundi mjög í ætt við ferfætlu þá, sem Megat- herium kallast. Lágu bein úr hrygg dýrsins við hlið- ina á beinagrindinni eins og þau hefðu hrunið úr henni og á einum stað hafði rigningarvatn lekið inn um rifu á þakinu og leyst hana upp, þar sem það hafði komið niður. Innar í sal þessum fann ég gríðar- stóra beinagrind af skriðdýri. Tilgáta mín um, að höll þessi væri gripasafn, var því rétt. Út við hliðarvegg- ina fann ég skáhallar veggkistur, og þegar ég þurrk- aði af þeim rykið, sá ég, að þær voru með glerlok- um, eins og nú tíðkast um hirslur á slíkum söfnum. En þær hljóta að hafa verið loftþéttar eftir því að dæma, hve margt hafði geymst þar vel. Það var ekki um að villast, að við vorum stödd á náttúrugripasafni. ( þessum sal hafði verið dýrastein- gervingadeild og raðir þær af alls konar steingerv- ingum, sem stóðu meðfram veggjunum, báru þess ó- tvíræðan vott, að safnið hafði verið mjög fullkomið, þótt það bæri nú öll merki hrörnunarinnar. Dauða- þögn drottnaði hér innan veggja. Fótatak okkar heyrðist ekki, því þykkt rykið á gólfinu kæfði það. Vína hafði verið að ieika sér að ígulkeri niður ská- hallt glerlokið yfir einum gripakassanum, en nú kom hún til mín stillileg á svip og stakk hönd sinni í lófa minn, þar sem ég stóð og starði í kringum mig. Ég var í fyrstu svo steini lostinn yfir þessum forna minn- isvarða mannlegs hyggjuvits, að engin önnur hugs- un komst að. Ég hætti jafnvel að hugsa um tímavélina. Eftir stærð grænu postulínshallarinnar að dæma, hlaut hún að geyma margt fleira en þetta safn af dýraleifum frá frumöld. Ef til vill voru þar llka salir með forngripasöfnum eða jafnvel bókasöfn. Allt í einu þrýsti Vína sér fast upp að mér. Þessi hreyfing hennar var svo snögg, að ég hrökk saman. Ég mundi varla hafa tekið eftir, að gólfinu hallaði sífellt niður á við, ef hún hefði ekki bent mér á það. Sá endi salarins, sem við höfðum komið inn um, var alveg yfir jörðu, og báru langir og mjóir gluggar á stafni hans næga birtu. En eftir því sem innar kom í salinn, eða neðar, minnkaði dagsljósið. Ég hafði verið svo niðursokkinn í að athuga vélamar, að ég
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.