Skírnir - 01.12.1918, Síða 18
:288
Bypgingamálið
[Skirnir
Hver gat bygt eftir sínu höfði, því hvorki hafði venjan
lielgað neitt né innlend reynsla, og listamenn höfðu engar
góðar fyrirmyndir geflð. Húsin bera flest nýbreytnina og
þroskaleysið utan á sér. Og við þessu varð ekki gert.
öli atvik og ástæður báru að þessum brunni.
Og sama kom víðast í Ijós er inn í húsin var komið.
12X14 álna húsi var krossskift; ef til vill var það hólfað
nokkru meira sundur. Svo er ein af stofunum tekin fyrir
baðstofu og önnur fyrir hjónaherbergi, gestastofu o. s. frv.
án þess að víða3t sé föstu augnamiði fylgt. Sama handa-
hóflð vill oftast verða á öllum húsmunum og búnaði her-
bergjanna. Fátt eitt er heima unnið, því forn hagleikur,
vefnaður, tréskurður og listfengi er nú fremur fátítt hjá
alþýðu. Sænskir birkistólar, ýmislegur ódýr kaupstaðar-
varningur, gljámyndir af kaþólskum dýrðlingum og ann-
að smekklítið kaupstaðaprjál er oft það helzta, sem bónd-
inn býr berbergi sín með. Það er ekki ástæða til að lasta
bændur fyrir þetta. öllum myndi farast eins í þeirra
sporum. A öllum búnaði baðstofanna var fast fornt skipu-
lag, en hér ræður enn geðþótti og smekklítið handahóf.
Það er áreiðanlega erfiðara en flestir ætla, að ráða
bót á þessu og miklu meira vandaverlc. Góður listamað-
ur getur lagt grundvöllinn, hvenær sem vér verðum svo
hepnir að eignast mann, sem sé því vaxinn, en reynslan,
lifnaðarhættir og skapferli fólksins hlýtur smámsaman að
móta margt, og til þess þarf langan tíma. En fyr erum
vér ekki vel á vegi staddir að þessu leyti en alt
fellur bæði listfengt og haganlega saman: húsin, bygging-
arefnin, landslagið og lifnaðarhættir fólksins.
Ekki geri eg ráð fyrir þvi, að það geti orðið nokk-
urs eins manns verk að koma þessu í fyllilega fast horf,
en grundvöllurinn verður tæpast lagður á annan hátt en
þann, að landið taki full-lærðan húsagerðafræðing til þess
að gera uppdrætti að byggingum bænda og leiðbeina þeim
í allri húsagerð1). Og .það er ekki nóg, að sá maður hafi
*) Sem 8tendur Lefir Jóh. Fr. Kristjánsson svipað starf á kendi. Eg