Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.12.1918, Síða 72

Skírnir - 01.12.1918, Síða 72
358 Prá Frakklandi, 1916—1917 [Skirnir troðfullum götunum ægir hór cllum þjóðflokkum saman, nema frá Mið Evrópu: Frökkum, Serbum, Spánverjum, Algieringum, Grikkj- um, Arobum, Kabýlum, Kússum, Indverjum, ítölum, Englending- um, Skotum, Gyðingum og Núbíumönnum. Mílulangar skipakvi- arnar fullar af skipum. Yfirfljótanlegt er af alls konar matvælum. Allir eru glaðværir og annríkir í hinu bjarta og þurra Ijósi. Þar sáum vór hina fegurstu sjón, og ef til vill þá er meat mætti auð- mýkja Yesturlandamann. Það voru tveir arabiskir riddaraliðsmenn, er gengu niður aðalstrætið í síðum einkennisskikkjum, hvítum og rauðum; hinir hvítu vefjarhettir þeirra voru búnir dökkum loð- skinnum og hölluðust lítið eitt aftur. Þessir menn voru fullar þrjár álnir á hæð og gengu þeir í hægðum sínum, reyktu vindlinga og sneru höfðinu hægt til beggja hliða, eins og úlfaldar eyðimerkurinn- ar. I sólbrunnum, mögrum og skeggjuðum andlitunum á þeim var hvorki fyrirlitning nó áhuga að sjá, ekkert annað en dýrlega sjálfsnægju; en við hliðina á þeim virtist sem allar aðrar mann- tegundir væru líbilfjörlegar og Bkiftu engu máli. Guð má vita, um hvað þeir voru að hugsa — hugsanirnar hafa líklega verið álíka hverfular og reykurinn, sem þeir blósu út um sínar vel gerðu nasir — en fegurð þeirra og yndisþokki var óviðjafnanlegur. Og þegar maðúr sá í huga sór iðnaðarborgirnar okkar miklu, í vestri og norðri, og litlu, fólu, lirjáðu örverpin, sem þær unga út, þá vaið maður bæði hryggur og skömmustulegur. í Marseille úði og grúði af hermönnum. I Lyon, Valence, Arles, jafnvel í minstu bæjunum var aragrúi af þeim, og var þetta þó um þær mundir, er bandamenn hófu sóknina. Só mannafli Frakklands að þrotum kominn, eins og sumir halda fram, þá dylur það það svo vel, að það er engu líkara en verið væri að fara af Titað með fyrsta liðið. Frá Marseille fórurn vór til Lyon. Eg hefi heyrt menn segja um þá borg, að hún væri hörmulega tilbreytingarlaus; en í sam- anburði við Manchester eða Sheffield er hún eins og himnariki sam- anborið við helvíti. Milli tveggja straumharðra fljóta undir háum hálsum, líkist hún helzt Florence, sem væri orðin að voldugri verzl- unarborg. Vera má að hún só dapurleg f þokuveðri, en himininn vnr blár og sólin skein; það var einmitt verið að byrja mikla kaup- stefnu, og var mikill anuríkis- og myndarbragur á hverjú stræti. Englendingar hafa alt af haft óljósan grun um það, að Frakk- land væri ekkert siðsemdarland. I augum þess, er kemur þangað einungis sem gestur, er Frakkland siðbezta land stórveldanua fjögra
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Skírnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.