Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.12.1918, Side 87

Skírnir - 01.12.1918, Side 87
Skírnir] Kitfregnir 373; þrifuno, og hræsni. Engin furða, þó þeim lendi saman Jóni og sóra Einari. Presturinn er ungur og vandlátur klerkur, nýkominn í brauð- iS, og ætlar sér að vekja BÖfnuðinn úr deyfðinni, er hvílir yfir honum í kirkjumálum og trúmálum. í því efni geta kenningar Jóns ekki verið honum nema Þrándur ( götu. Og presturinn mæt- ir samt nógu mikilli mótstöðu í baráttu sinni við gamlar óvenjur og ósiði. Honum er vorkunn, þó hann ráði ekki við gamla saur- Hfismanninn Hallgrím með tveimur frillunum. En heldur ekki f öðrum málum verður honum mikið ágengt; hann er of grunnhygg- inn og auðtrúa, er enginn mannþekkjari, og auk þess fer hann alt of geyst. Hann ræðst allóþyrmiiega á dans unga fólksins í lestrar- fólagi Jóns, og þó er hann eiginlega enginn oftrúarmaður og held- ur ekki sérlega fastheldinn við gamlar kreddur, getur t. d. vel slakað eitthvað á helvítiskenningunni. Gallinn *er sá, að þessir tveir menn, sem hvorugur vill nema það, sem gott er, eru andstæöingar. Þeir ættu að vera samherjar. Misklíð þeirra hvílir á mlsskilningi einum. Jón er meira kristinn en hann þykist vera, og ofsinn og mótstaðan blinda augu prests- ins. í raun og veru laðast þeir hvor að öðrum undir niðri. Alt hefði ef til vill farið vel fneð þeim á endanum, hefðu ekki verlð menn til í sveitinni, sem þurftu á þessari misklíð að halda til þess að koma sínu fram. Þessir menn, einkum Hallgrímur á Bergi og Jón ráðsmaður, eru vinir hvorugra og reyna að eins að koma sundrungu á stað. Og þeim tekst það vonum framar. Undirróður þeirra kemur fullum fjandskap á stað í milli þeirra; Jón hefir þungað stúlku á prestssetrinu, Margrétu að nafni, en vill komast undan skyldum síuum og mútar öðrum manni til þess að ganga við faðerninu, og jafnframt tekst honum að sannfæra síra Einar um sakleysi sitt. Margrót hefir — sumpart af hræðslu við prest- inn — leitað á uáðir Jóns á Vatnsenda. Jón lekur málstað hennar gegn ráðsmanninum, en prestur málstað Jóns ráðmanns. Og kem- ur nú svo, að Jón fær það álit á síra Einari, að hann só mikill níðingur og hræsnari, en prestur heldur, að Jóni gangi að eins til hatur til sín og góðra siöa, og álítur hann sér mestan Þránd í götu í helztu áhugamálum sínum. Reyndar dofnar smámsaman nokkuð yt'ir þessum fjandskap; þeir mætast jafnvel eftir nokkurn tíma til samvinnu á ymsum sviðum, en mikill kali helzt þó með þeim um mörg ár. En börn þeirra, sonur Jóns og dóttir síra Einars, draga sig saman og trúlofast á laun; þora ekki að láta þetta uppskátt

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.