Jörð - 01.08.1931, Síða 2
MAOTíRÆKT
(PHYSICAIi CCIiTURE FOR MIND AND RODY)
H E I T I R mánaðarrit með myndum, sem kemur út í New
York og mun glæsilegasta málgagn hinnar ungu mannræktar-
hreyfingar, sem um þessar mundir gengur upp sem fífill í túni
í öllum broddlöndum menningarinnar. »Heilsa, hreysti, fegurð«
eða í einu orði: hamingja, mega heita kjörorð hennar og keppi-
kefli, og á þá við hið andlega jafnt liinu líkamlega, þjóðfélös
jafnt sem einstaklinga. Ræktun gervallrar náttúru mannsins,
líkama, sálar og anda, — hvers einasta þjóðfélagsþegns — á-
samt _ ræktun hinna einföldu samfélaga, sem eru undirrætur
þjóðfélaganna svo sem ástir, hjónaband, barnauppeldi, eru
markmiðin, sem starf mannræktarhreyfingarinnar miðar að.
Tímaritið y>Physical Culturea. ræðir málefni þessi almennt, en
flytur þó einkum ritgerðir um sérstök efni, er að þeim lúta, svo
sem barnauppeldi, sálarfræði, Hkamsæfingar, yndisþokka, mat-
aræði, útilíf, hjónalíf og ástir (og þá einkum frá almennu sam-
félagssjónarmiði) ; ennfremur skrifa frægir læknar í það alþýð-
legar ritgerðir um algengustu og illvígustu sjúkdóma; aðallega
leiðbeiningar. Þá bii-tast í tímariti þessu fjöldi einkabréfa, er
skýra frá persónulegri reynslu í framantöldum greinum, eða
leita ráða í vandræðum einkalífs síns. Yfirleitt er allt, efni og
efnismeðferð, svo mannlegt, einfalt og aðlaðandi, að við flestra
hæfi mun vera, sem bera löngun í brjósti til að taka sér fram
sem menn eða ala börn sín upp til drengskapar. Auk ritgerða
flytur tímarit þetta mikið af sögum, styttri sem lengri. Að frá-
gangi er það með allra glæsilegustu »magasínum«, sem út koma,
prentað á góðan pappír með venjulegri íslenzkri leturstærð og
troðið af ágætismyndum. Er hvert liefti um 150 bls. að stærð í
»folíó«-broti (mun stærra en Alþingistíðindabrot), þar af nær
100 bls. lesmál, en um 50 bls. auglýsingar, sem yfirleitt eru af
sama anda og lesmálið og því margar að mun fróðlegri og eft-
irtektarverðari en gengur og gerist.
Áskrifendaverð: 4 dollarar fyrir 1 ár; 7 dollarar fyrir 2 ár.
Meðal merkra manna, er ritað hafa i síðasta árgang, má
nefna, auk Bernarrs Macfaddens, hins stórvirka og hugumstóra
forkólfs hreyfingarinnar I Ameríku: Franlclín D. Roosevelt rík-
isstjóra í New-Yorkríki; talinn liklegur til að verða næsti for-
seti Bandaríkjanna; Sir W. Arbuthnot Lane, frægur enskur
læknir; Dr. Alfred Adler í Vínarborg, höfundur nýrrar, hag-
nýtrar sálarfræði; Samúel D. Levy, barnadómari í New York;
Heywood Broun, einhver mest metni blaðamaður og ævintýra-
maður (í bezta skilningi) Ameríku; Harry Emmerson Fosdick,
D. D., einhver áhrifamesti prédikari Bandaríkjanna um þessar
mundir; Warwiclc Deeping, einn af alþýðlegustu skáldsagnahöf-
undum Bandaríkjanna nú á dögum.
12,00 geysistórar blaðsíður á á/rí af lifgandi lesmáli og mynd-
um fyrir rúmar 16 lcr. Áskrifendur hafa rétt til að leita ráð-
legginga á þcim sviðum sem timarítið fjallar um og fá þær ó-
keypis í alúðlegum, vönduðum einkabréfum.
Lysthafendur snúi sér til umboðsmanns útgáfufélags »Physi-
cal Culturc/. á íslandi, sem er
síra BJÖRN O. BJÖRNSSON,
Ásum í Skaftártungu.