Jörð - 01.08.1931, Side 38

Jörð - 01.08.1931, Side 38
DAVÍÐ STEFÁNSSON FRÁ FAGRASKÓGI [Jöið 3(> veginn að koma inn um eftir langa og þögula fjarveru í framandi löndum. Því dásamlegur var æskuskáldskapur Davíðs. »N Ý K VÆ Ð 1« berast oss í hendur. Vér lesum »Hall- freð« og »Hrærelc«. »Of veikur, of veikur!« Kvíðinn verð- ur að ótta: hann stælir sjálfan sig! Þó koma fyrir í »Hræ- reki« ijóðlínur þessar: »Klafabuudinn konungsvilja kotungamir skilja. Konungssál í kotungsflíkum kvelst með sínum líkum«. / Lesandinn hrekkur við. Þetta er líkt og lítil en snögg vindkviða á mollulegum degi. Skyldi hún boða sterkveð- ur, eins og þau gera ósjaldan, sum þessi stuttu, snöggu stormköst? Hægt, með magnaðri athygli teigar lesandinn »Brot úr loflwæði Lárentiusar«. Kvæðið er gott, um það er ekki að villast. Hér um bil seinast í því leggur fyrir andvara hins eilífa máls, hógværan og lífgandi, líkan »hinum djúpu, straumþungu Sílóamvötnum«: »Á jörð, á himna og höf er heilög speki skráð. Allt líf er guðleg gjöf; öll gæfa himnesk náð. Öll fóm er helg og há; hver hönd, er vinnur, sterlc. Allt, allt, sem augun sjá er undur, kraftaverk«. Augun ljóma af gleði: Davíð er kominn upp á örðugasta hjallann í brattgöngu skáldsins: fullþroskað skáld. f »Nú sefur jörðin« er m. a. þetta erindi um svefninn: »Og sá sem þunga bölsins ber, fær byrði dagsins létt af sér, fær launuð öll sín kvalakjör, fær kraft í nýja píslarför«. Og enn fremur: »En mildi Guðs er mannkyn háð; að minnast hans er æðsta náð;

x

Jörð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jörð
https://timarit.is/publication/466

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.