Jörð - 01.08.1931, Side 47

Jörð - 01.08.1931, Side 47
Jörð] ÁSTIR 45 konu, er innibindur í sér samfarir eða myndi eðlilega leiða til samfara. Af framanskráðu mætti láta sér detta í hug, að í raun og veru sé það ekki rétt notkun orðsins. Það samlíf og þær hugðir yfirleitt, sem til þess leiða, mætti kenna til »sjafnar«, sem er gott íslenzkt orð og not- að í Snorra-Eddu um gyðju þess háttar samlífs og hugða, og mun þó ekki þarflaust að skilgreina nánar nú þegar. Því hér er um meira en orðaleik að ræða. Hér er að ræða um róttækan skilning eða misskilning á því, hvað ást er — lifanda líf. Þegar ég var unglingur í gagnfræðaskólanum á Akur- eyri, var einhverju sinni til umræðu í bekkjarfélagi mál- efnið »hvað er ást?«. Var þá eingöngu átt við kynferðis- lega mótaða ást milli karls og konu. Voru sumir, er þótt- ust reyndir og ráðnir, þeirrar skoðunar, að ekki væri nein réttnefnd ást til á þeim vegum, heldur væri þar ein- tómt segulspil andstæðra kynja. Hinar hugljúfu sögur um Sigrúnu á Sunnuhvoli, Davíð skyggna og þvílíkar væru falsanir, gyllingar staðreynda. Aðrir tóku svari hinnar fornu hugsjónar; gátu ekki fengið af sér að afneita hinu Ijúfa hugbo|ii sínu; hafa og sumir e. t. v. talað af reynslu. Var ég einn þeirra, er trúðu betur Davíð skyggna, en kaldrifjaðri vizku sumra bekkjarbræðranna. Oss er ekki grunlaust um, að brúðuleikur okkar í bekkj- arfélaginu sé í rauninni sönn mynd af lífinu — þjóðlíf- inu. Skoðanirnar um, hvað »ást« sé og þess háttar, eru ekki einungis misjafnar, heldur og örlagaþrungin til- finningamál. Á öllum tímum hafa verið til kaldrifjaðir fríhyggjumenn, sem boðuðu almúganum, að »ástin sé girnd og ekki nema girnd«, eins og það var orðað í ung- æðislegri kappræðu okkar skólapiltanna. Fram að þessu hefir sú skoðun þó enganveginn náð almennri viðurkenn- ingu, enda venjulega léttúðlega flutt. öðru máli gegnir um nútímann. Alvarlegir menn og jafnvel góðgjarnir flytja nú speki þessa eða þvílíka í fyrirlestrasölum há- skólanna og rita bækur um það; blöð og samkvæmislíf eru gegnlituð af því. »Það er eins og fátt þyki nú hafa rétt á sér við hliðina á ástalífi unga fólksins«, segir

x

Jörð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jörð
https://timarit.is/publication/466

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.