Jörð - 01.08.1931, Page 50

Jörð - 01.08.1931, Page 50
4é ÁSTIR [Jörð menn uppeldi barna á heimilum, jafnvel tilvistarrétti heimila yfirleitt. Telja sig sumir ætla að elska alla, en lenda í því að elska ei neinn. Hver sá, er traðkar á eigin ástum, murkar og lífið úr yl þeim, er í brjóstinu býr og , giftusvipur stafar af, en hamingjan fylgir. Það þjóðlíf, það mannkyn, sem ber ástir sínar út, setur jafnframt sjálfu sér til höfuðs útburð, er standa mun yfir höfuð- svörðum þess undir Feigsbjargi á Fimbulvetri. ófriður og ástleysi fara saman og geta tortíming. Hafa menn í því efni ekki einungis hugboð fyrir sér og spámannlegar aðvaranir, svo sem Völuspár, því þess eru næg dæmi úr sögu mannkynsins og er einna kunnust sagan um hrörn- un og fall Rómaveldis. — Ástir eru því ekki einungis eitthvert fegursta yrkisefni skálda og listamanna, heldur eru þær sjdlfsagt viöfangs- efni trúar og vísinda, til þess að hægt verði að upplýsa almenning um þær, svo sem framast má verða, og hljóti hann í þeim efnum heilbrigðar og tímabærar skoðanir, er áhrif hafi á breytni einstaklingsins, en beini siðvenj- um innáæ betri, fegurri og fullkomnari brautir. Er þá og auðséð, að ríkið og aðrar þjóðnytjastofnanir — fyrst og fremst skólar og kirkja — hljóta að láta málefni ásta til sin taka eftir föngum, trú og vísindum samkvæmt. ÁSTIR eru fjörefni, jafnt mannlífs sem þjóðlífs; þær magna til dáða; veitá þol. Ástir eru salt í mannlífi og þjóðlífi: vörn við spillingu; innræta andstyggð á ó- þverranum; eru hin lifandi sál skírlífis. Ástir eru blóm hins náttúrlega lífs. Án þeirra væri tilvera vor ömuiieg- ur tómleikur; ilmur hennar ekki til lífs, heldur dauða. Allt til dauðans veita ástir unað. Umfram alla aðra hluti megna ástir að veita gagntakandi unað, líkama og sál. »Saman okkar sálir runnu; sama hjarta í báðum sló; af sama eldi augun brunnu, en allar taugar skulfu af fró. Heitar varir eiða unnu í unaðsfullri sæluró«. (D. St.)

x

Jörð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jörð
https://timarit.is/publication/466

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.