Prestafélagsritið - 01.01.1933, Blaðsíða 15
Prestafélagsritiö.
Biblíulestur.
9
í Biblíunni, hvort heldur í G.t. eða N.t., en aS lesa
verður rit hennar eftir föstum ákveðnum reglum með
það í huga, að Kristur geti orðið leiðtogi samvizkunnar,
að hún megi verða höndluð af Kristi og opinberun hans,
lífi hans og kenningu.
En lwernig má þetta verða?, munu menn spyrja.
Hverjar eru þær reglur, sem sá verður að fara eftir, er
lesa vill Biblíuna á þann hátt sér til uppbyggingar?
Um það skulu nú gefnar nokkrar leiðbeiningar.
Fyrst verður að kynnast Kristi sjálfum, eins og guð-
spjöllin lýsa honum. Af þvi leiðir, að byrja verður biblíu-
lestur á N.t. og það einmitt á guðspjöllunum, og á þann
hátt á lesandinn að drekka í sig anda Krists og gjöra sér
far um að öðlast sem mest af huga hans. Þvi að í guð-
spjöllunum gefst mönnum kostur á að kynnast þeim há-
leitu hugsjónum, sem einkendu hugsanalíf Jesú Krists.
Þar kynnast menn og hinum djúpa og dýrlega kærleika,
sem einkendi tilfinningalíf hans. Og þar má kynnast
hinni óbifanlegu festu, þrótti og öruggleika, sem svo
fagurlega einkendi viljastefnu og viljaframkvæmd Jesú
Krists. Því meir sem vér lesum í guðspjöllunum, þvi bet-
ur munum vér skilja, hver sé kjarni kristindómsins, og
þvi meiri festa mun komast í kristilega lífsskoðun vora.
Við lestur guðspjallanna getur naumast hjá því farið, að
mynd hins heilaga Guðssonar fari smátt og smátt að mót-
ast í sálu lesandans, verða honum kær og heilög mynd,
er fari að hafa áhrif á huga hans og vekja þrá að líkjast
Kristi og verða lærisveinn hans, þótt í veikieika sé. Þá
er þeim tilgangi með lestrinum náð að verða höndlaður
af Kristi Jesú, eins og Páll postuli sagðist vera. En það
er mest um vert og meira virði en hitt, að verða ritn-
ingarfróðnr eða lærður í guðfræði við lesturinn. Það er
ekki öllum gefið að verða það, enda ekki neitt hjálp-
ræðisskilyrði fyrir neinn mann. Hitt er hið eina nauð-
synlega, að eignast huga Krists og hafa hann að leiðtoga
til guðsamfélags og góðleiks.