Prestafélagsritið - 01.01.1933, Side 38
32
Jón Helgason:
PrestafélagsrLtið.
gaf Schweitzer þeim fegursta dæmið til eftirbreytni, er
liann án alls manngreinarálits liðsinti mannætunum engu
síður en öðrum er til hans leituðu, og læknaði þá. —
Sem að líkum lætur, var Schweitzer það frá fyrstu byrj-
un ljóst, að skilyrði þess að fá notið sín til fulls í starfi
sínu, var umfram alt, að honum tækist að koma sér upp
sjúkrahúsi, þar sem hann gæti safnað saman sjúkling-
um sínum og eins haft þá undir liendi meðan á lækning-
unni stæði. Jafnskjótt og hann því hafði komið upp skýli
handa sjálfum sér, tók liann að viða að sér efni til sjúkra-
hússgerðar og var unnið að smíði þess allan næsta vetur.
Það var nú sízt auðhlaupið að þvi að fá hæfa smiði og
verkamenn, sem trúandi væri fyrir að vinna að slíkri
húsagerð; því að útlærðir smiðir voru þar ekki á hverju
strái og verkamennirnir voru bæði hysknir og fákunn-
andi. Hann varð þvi sjálfur að hafa alla yfirumsjón með
smíðinni og þegar liann mátti því við koma fyrir annríki,
þá vann hann sjálfur með sem óbreyttur verkamaður.
En það bafði liin beztu áhrif á hina, er þeir sáu, að lækn-
irinn sjálfur lilífði sér ekki við svita erfiðisvinnunnar,
jafnvel liinnar þyngstu.
En þegar smíðinni á sjúkrahúsinu mátti heita lokið.
bárust ill tíðindi og óvænt suður til Lambarene. Það var
heimsstyrjöldin, sem brotist hafði út síðustu dagana í
júlí 1914 og liér um bil jafnsnemma og þetta fréttist
barst Schweitzer — 5. ág. 1914 — tilkynning þess efnis
frá frakknesku yfirvöldunum, að hónum væri, vegna
þýzk-svissnesks þjóðernis hans, fyrirboðið að eiga nokk-
ur mök hvort heldur við hvíta menn eða svertingja þar
syðra. Hvílíkl reiðarslag þetta var fyrir Schweitzer, ræð-
ur að líkum. Reyndar liafði hann aldrei sózt eftir annari
viðurkenningu en þeirri, sem fylgir meðvitundinni um
að liafa hlýðnast rödd samvizku sinnar. En við því hafði
hann sízt búist, að þessar yrðu þakkirnar, sem biðu hans
fyrir hið óeigingjarna guðsþakkarstarf hans, að honum
yrði bannað að nota hæfileika sína og kunnáttu öðrum til