Prestafélagsritið - 01.01.1933, Blaðsíða 27
Þrestafélagsritið.
Albert Schweitzer.
21
háu stigi. Mjög snemma var því tekið að kenna honum
að leika á hljóðfæri, einkum organslátt, og í þeirri grein
tók hann svo skjótum framförum, að naumast níu ára
gömlum var honurn trúað f\TÍr að leika á orgelið við
guðsþjónustur í kirkju föður hans i forföllum organleik-
arans. Og áður en hálfnuð var dvöl hans í latínuskólan-
um fékk hann, aðeins 15 ára að aldri, að dveljast miss-
eristíma í París til þess að njóta þar tilsagnar í organ-
spili hjá frægum organsnilling, Ch. M. Vidoar, þar í borg-
inni. Það er þá og eftirtektarvert í þessu sambandi, að
fyrsta rit Scliweitzers, sem prentað var, er um annan
frakkneskan tónsnilling, sem hann hafði komist ungur
i kynni við og lært hjá. Naumast hefir Schweitzer á
þeim árum órað fyrir því, hve mikinn stuðning hann
ætti i vændum af hálfu kunnáttu sinnar og mikillar
leikni á sviði tónlistarinnar, síðar í lífi sinu. Þó var það
þrátt fyrir ágætar gáfur hans á sviði tónlistarinnar, fjarri
huga hans að gera iðkun tónlistarinnar að æfistarfi sínu.
Aður en hann hafði lokið skólanámi var hann stað-
ráðinn í, þegar þar að kæmi, að velja sér guðfræði að
háskólanámi, til þess síðar að feta í fótspor föður sins og
móðurföður síns sem evangeliskur sóknarpreslur. Stóð
þetta meðfram í sambandi við alvörugefni hans, er óx
með ári hverju eftir ferminguna og mótaði allan skap-
feril bans. Hugur lians bafði allsnemma hneigst til í-
hugunar og heilabrota um ýmsar vandaspurningar lífs-
his, sem hann vitanlega brast allan þroska til að glíma
við. En hann gerði sér öruggar vonir um, að guðfræði-
námið mundi greiða úr ýmsum þesskonar spurningum
fremur en nokkurt nám annað. 1 mörgu tilliti varð hon-
mn að von sinni hvað þetta snertir, en ekki í öllu. Fjölda
gátna fékk hann ekki ráðið. En alt að einu varð guðfræði-
námið honum hið hugnæmasta og hann iðraðist þess
aldrei, að hann ungur hafði valið guðfræðina að viðfangs-
efni. Hann þótti snemma bera af flestum námsbræðra
sinna sakir skarpleika hugsana sinna og óvenjulegrar