Prestafélagsritið - 01.01.1933, Side 76
70
Sigurður P. Sívertsen:
Prestalélagfirltift.
en hið nýja setti ekki nægilega sinn blæ á þær, þar eð
það sem viðbót ekki gat orðið þungamiðja altarisþjón-
ustunnar. — Frá þessu er nú vikið á þann hátt, að þeg-
ar hátíðasöngvar eru hafðir, koma þeir í stað hinna al-
mennu víxlsöngva og með því verða þessar guðsþjónust-
ur samfeld heild með hátíðasöngvunum sem þungamiðju
altarisþjónustunnar þessa daga. Er það í samræmi við
aftansöngva á aðfangadagskvöld og gamlárskvöld, eins
og þeir nú eru hafðir. Hafa menn felt sig ágætlega við það
fyrirkomulag, og er því eðlilegt að tekið sé tillit til feng-
innar reynslu og öðrum hátíðaguðsþjónustum breytt í líka
átt.
Þá er gjört ráð fyrir því í núverandi Helgisiðabók
vorri, að börn séu fermd í almennri hádegisguðsþjón-
ustu. Fermingarathöfnin, sem oft hlýtur að verða æði-
löng, á því samkvæmt að vera viðbót við guðsþjónust-
una eins og hún vanalega fer fram. — í stað þessa er nú
gjört ráð fyrir að fermingin verði miðdepill guðsþjón-
ustunnar þann dag. Til þess að svo geti orðið, hefir ver-
ið samið sérstakt form fyrir fermingarguðsþjónustu, sem
aldrei á að nota endranær. Auk þess er gjört ráð fyrir að
hætt sé við barnaspurningarnar eða samtahð við börnin
fermingardaginn, þar eð þessar spurningar þráfaldlega
slita sundur athöfnina og valda ókyrð, sem sízt má verða
við þessa hátíðlegu athöfn. Er með þessum breytingum
að því stefnt, að fermingarathöfnin öll verði samfeldari
og áhrifameiri.
I sömu átt fara breytingar á öllum vígsluathöfnum
kirkjunnar, t. d. prestsvígslu, biskupsvígslu og kirkju-
vígslu, þótt hér sé ekki frekar gjörð grein fyrir þeim
breytingum.
Þá er enn eitt atriði, sem reynt er að stefna að með
helgisiðabreytingunum. Það er aukið samstarf milli prests
og safnaðar og þar með meiri þátttaka safnaðarins í guðs-
þjónustuhaldinu.